Liverpool vann Crystal Palace örugglega 4-0 í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Færist liðið enn nær Englandsmeistaratitlinum.
Crystal Palace heimsótti Anfield í kvöld og var ekki um neina frægðarför að ræða. Heimamenn fóru hamförum og gestirnir vissu ekki sitt rjúkandi ráð.
Trent Alexander-Arnold skoraði fyrsta mark leiksins á 23. mínútu beint úr aukaspyrnu. Það var svo Mohamed Salah sem jók forystu heimamanna undir lok fyrri hálfleiks og staðan 2-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik.
Síðari hálfleikur var endurtekning á þeim fyrri en Fabinho skoraði þriðja mark Liverpool á 55. mínútu. Sadio Mané skoraði svo fjórða og síðasta mark leiksins þegar tæplega sjötíu mínútur voru á klukkunni.
Lokatölur 4-0 og Liverpool nú með 23 stiga forystu á toppi deildarinnar. Crystal Palace er sem fyrr í 9. sæti en liðið er með 42 stig þegar sjö umferðir eru eftir.