98 sm lax úr Miðfjarðará Karl Lúðvíksson skrifar 18. júní 2020 08:54 98 sm laxinn sem veiddist í Miðfjarðará í gær Mynd: Midfjardara lodge
Fyrsti laxinn sem mætti sannarlega kalla stórlax veiddist í Miðfjarðará í gær en eins og myndin ber með sér er þetta rígvænn og flottur lax. Laxinn kom á land í Austuránni og það hafa verið að sjást laxar víða síðustu daga og þrátt fyrir að áinn sé frekar vatnsmikil er laxinn eins og oft í byrjun tímabilsins fljótur að fara upp á efri svæðin. Veiðin í Miðfjarðará var komin í 20 laxa í gær þegar tölur teknar saman í gær sem er svipað og í fyrra en aðstæður þá voru mun betri þrátt fyrir að göngur hafi verið litlar. Það er frekar mikið vatn í Miðfjarðará eins og öðrum ám á landinu þessa dagana og það er ljóst að veiðin á eftir að dafna þegar göngurnar verða stærri sem og þegar vatnið fer að sjatna. Það gæti samt tekið smá tíma í þessum landshluta þar sem það er ennþá mikill snjór í fjöllum. Það er þó engin að kvarta yfir miklu vatni og fyrirsjáanlegri góðri vatnsstöðu eftir þurrkasumarið í fyrra.
Mest lesið Síðasta skemmtikvöld SVFR Veiði Misvísandi skilaboð frá LV varðandi útboð og hækkanir Veiði Verðlækkun í Rússnesku ánum Veiði Federal skotin loksins fáanleg aftur á Íslandi Veiði Hraunsfjörður fer að vakna Veiði 57 laxar gengnir í gegnum teljarann í Elliðaánum Veiði Tarantino tók maríulaxinn í Hítará Veiði Fleiri lokatölur úr laxveiðiánum Veiði Sprenging í umsóknum um Elliðaárnar Veiði Skemmtikvöld SVFK 9. desember Veiði