Bjarni Thor bæjarlistamaður Garðabæjar Andri Eysteinsson skrifar 17. júní 2020 15:33 Bjarni Thor, bæjarlistamaður Garðabæjar, tók lagið við athöfnina. Aðsend
Óperusöngvarinn Bjarni Thor Kristinsson var í gær útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar í ár. Bjarna voru veitt verðlaun við athöfn sem fór fram í Sveinatungu á Garðatorgi. Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari hlaut heiðursviðurkenningu fyrir framlag sitt til menningar og lista en Hallfríður er höfundur bókanna um músíkmúsina Maxímus Músikús. Bjarni Thor óperusöngvari hóf söngnám 18 ára gamall og fór í framhaldsnám í Vínarborg árið 1994. Þremur árum síðar var hann ráðinn aðalbassasöngvari þjóðaróperunnar í Vín. Eftir dvölina í Vín hefur Bjarni starfað víðs vegar um heiminn sem lausráðinn söngvari. Hann hefur verið tíður gestur ríkisóperunnar í Berlín en hefur til að mynda komið fram í Róm, Veróna, París og Chicago svo dæmi séu nefnd. Bjarni hefur að mestu sungið erlendis undanfarin ár og var við æfingar í ítölsku borginni Parma þegar kórónuveirufaraldurinn skall á. Hallfríður er einn fremsti flautuleikari þjóðarinnar en bækur hennar um Maxímús Músíkús hafa farið sigurför um heiminn og hafa fjölmargar sinfóníuhljómsveitir flutt Maxímúsardagskrá á tónleikum sínum. Við athöfnina tók Bjarni Thor lagið en Hallfríður minnti á mikilvægi tónlistarskólanna hér á landi. AðsendHallfríður Ólafsdóttir flautuleikari.AðsendAðsend
Garðabær Menning Tónlist Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira