Upplifðu töfra íslenska hálendisins - Hálendisrútan skutlar þér Kynnisferðir – Reykjavik Excursions 16. júní 2020 14:33 Landmannalaugar er magnað svæði sem kalla má vin í hálendiseyðimörk Íslands. Hálendisrúta Kynnisferða – Reykjavik Excursions er frábær kostur fyrir ferðalanga sem vilja upplifa töfra Þórsmerkur, Landmannalauga eða Skóga á eigin vegum og losna við að fara á einkabílnum. Hálendisrútan keyrir daglega inn í Landmannalaugar, Þórsmörk og að Skógum. Ef fólk ætlar sér að ganga Laugaveginn eða Fimmvörðuháls er Hálendispassinn tilvalinn þar sem að valinn er upphafs- og endastaður eftir hentugleika. Bóka þarf sæti fyrirfram. Hálendispassinn Hálendispassinn er frábær valkostur fyrir sjálfstæða ferðalanginn og fullkomin leið til að kynnast tveimur af vinsælustu gönguleiðum Íslands, Fimmvörðuhálsi og Laugavegi. Þú kaupir einfaldlega einn Hálendispassa og færð far frá Reykjavík eða Hvolsvelli að upphafsstað gönguleiðarinnar og aftur til Reykjavíkur/Hvolsvallar þaðan sem gangan endar. Hálendisrútan ekur á hverjum morgni frá BSÍ í Reykjavík og einnig frá Lava Centre á Hvolsvelli. Bóka þarf sæti fyrirfram. Fyrir farþega sem ætla í gönguferð sem endar í Þórsmörk er boðið upp á pakkasendingar í Húsadal, Langadal eða Bása. Þú getur bætt við farangri þegar þú bókar Hálendispassann og bílstjórinn sem fer í Þórsmörk tekur við pakkanum þínum á BSÍ í Reykjavík og kemur honum á áfangastað. Landmannalaugar og Laugavegur Landmannalaugar er magnað svæði sem kalla má vin í hálendiseyðimörk Íslands, umkringd litríkum líparítfjöllum og jarðböðum og fjölda fallegra gönguleiða er að finna á svæðinu. Flestir göngugarpar sem ganga Laugaveginn hefja gönguna í Landmannalaugum og gefa sér þrjá til fjóra daga til að ganga yfir í Þórsmörk. Laugavegurinn er sannkallað augnayndi þar sem fjölbreytt og stórbrotið landslagið kemur stöðugt á óvart. Þórsmörk og Fimmvörðuháls Þórsmörk er ævintýralegt svæði umkringt jöklum og skriðjöklum. Hálendisrútan ekur inn í Húsadal, Langadal og Bása og hjá Volcano Huts í Húsadal er hægt að gista í smáhýsum, fjallaskálum og sérstökum lúxustjöldum eða Glamping (glamorous camping) og þar eru spennandi gönguleiðir á hverju strái. Glamping eða "glamorous camping" er einstök leið til þess að upplifa hálendið. Fimmvörðuháls er önnur vinsæl gönguleið sem hefur slegið í gegn á undanförnum árum eftir eldgos á miðri leiðinni árið 2010. Gönguleiðin liggur frá hinum sívinsæla Skógafossi yfir í Þórsmörk, eða öfugt, og þræðir leið á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls með tilheyrandi útsýni. Fimmvörðuháls er styttri en Laugavegurinn, tekur á bilinu 8-10 tíma, eftir hraða göngufólksins. Einnig kjósa margir að gista í skála á leiðinni og gefa sér tvo þægilega daga í gönguna. Það liggur nefnilega ekkert á í svona fallegu umhverfi. Ferð yfir Fimmvörðuháls er magnað ævintýri. Skógar Töfrandi staður undir Eyjafjöllum þar sem Skógafoss steypist fram af bjarginu. Á leið að Skógum má sjá margar af helstu náttúruperlum Suðurlands eins og Vestmannaeyjar, Heklu, Eyjafjallajökul og Seljalandsfoss. Ef ætlunin er að ganga yfir Fimmvörðuháls þá hefst gangan frá Skógum og um að gera að nýta sér Hálendispassann. Mögulegt er að nota ferðaávísunina og boðið er upp á lækkað verð í sumar. Kynnið ykkur tilboð og verð hér. Ferðamennska á Íslandi Ferðalög Mest lesið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið „Samband okkar hefur alltaf verið flókið“ Lífið Ævintýrapar selur fallega fyrstu eign Lífið Sturla elti Tinder-ástina til paradísarstrandar í Mexíkó Lífið Eiginmaður Dolly Parton er látinn Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Stórmyndir í útrýmingarhættu Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Fleiri fréttir Gæðadýnur á frábæru verði! Heilsan væri ekki sú sama án mjólkursýrugerlanna frá Probi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira
Mögulegt er að nota ferðaávísunina og boðið er upp á lækkað verð í sumar. Kynnið ykkur tilboð og verð hér.
Ferðamennska á Íslandi Ferðalög Mest lesið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið „Samband okkar hefur alltaf verið flókið“ Lífið Ævintýrapar selur fallega fyrstu eign Lífið Sturla elti Tinder-ástina til paradísarstrandar í Mexíkó Lífið Eiginmaður Dolly Parton er látinn Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Stórmyndir í útrýmingarhættu Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Fleiri fréttir Gæðadýnur á frábæru verði! Heilsan væri ekki sú sama án mjólkursýrugerlanna frá Probi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemming og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Lada Sport okkar tíma Skráning hafin í Íslandsmeistaramótið í Ólsen ólsen Frumsýning nálgast og Minecraft og Oreo bregða á leik Eldabuskan græjar þriðju vaktina Wok to Walk opnar þrjá staði þar sem áður var Wok On Konudagsleikur - taktu þátt í skemmtilegri hefð Sýning sem breytir upplifun okkar á heiminum „Við ætlum okkur að finna fyndnasta hlátur Íslands“ Wolt og Blush með ástföngnum í liði á Valentínusardaginn „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Almenningur eigi rétt á frjálsri för um óræktað land Óþægindi frá álagsmeiðslum minnkuð til muna með tilkomu Nutrilenk Stefnan sett á Ólympíuleikana 2028 „Í þessu jarðneska lífsbraski er G-vítamínið bráðnauðsynlegt“ Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Gerðu frábær kaup á húsgagnadögum JYSK NIVEA kynnir fyrstu hreinsivöruna með 5% serum Sjá meira