Frakkar segjast hafa fellt hryðjuverkaleiðtoga í Malí Kjartan Kjartansson skrifar 6. júní 2020 08:57 Alsíringurinn Abdelmalek Droukdel stýrði aðgerðum al-Qaeda í Norður-Afríku. Vísir/AP
Leiðtogi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Norður-Afríku féll í aðgerðum franska hersins í Malí fyrr í vikunni, að sögn franska varnarmálaráðherrans. Þá segjast Frakkar hafa tekið einn leiðtoga Ríkis íslams í landinu höndum í síðasta mánuði. Abdelmalek Droukdel er sagður hafa stýrt fjölda mannskæðra árása, þar á meðal árás á hótel í höfuðborg Búrkína Fasó þar sem þrjátíu manns voru drepnir og 150 særðir árið 2016. Dómstóll í heimalandinu Alsír dæmdi Droukdel til dauða að honum fjarstöddum fyrir hryðjuverk árið 2012. Hann var sakaður um að standa að þremur sprengjuárásum í Algeirsborg sem urðu 22 manns að bana og særðu fleiri en 200 til viðbótar í apríl árið 2007, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Mohamed Mrabat, liðsforingi Ríkis íslams, sem Frakkar segjast hafa tekið höndum í maí er sagður hafa verið háttsettur hjá samtökunum á Saharasvæðinu. Þúsundir franskra hermanna hafa verið í Malí frá árinu 2013. Þeir voru sendir til þessarar fyrrverandi nýlendu Frakklands eftir að íslamskir vígamenn voru við það að sölsa undir sig stóran hluta af norðanverðu Malí. Stjórnarherinn hefur síðan náð landsvæðunum aftur með aðstoð Frakka en átökin hafa breiðst út til nágrannaríkjanna.
Malí Frakkland Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira