Kylie Jenner ekki lengur á lista Forbes yfir milljarðamæringa Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 30. maí 2020 14:47 Kylie Jenner var sögð yngsti sjálfskipaði milljarðamæringur sögunnar á lista Forbes yfir milljarðamæringa árið 2019. Getty/Toni Anne Barson
Viðskiptablaðið Forbes hefur fjarlægt Kylie Jenner, raunveruleikastjörnu og frumkvöðul, af lista sínum yfir milljarðamæringa. Blaðið sakar hana og fjölskyldu hennar um að ýkja virði snyrtivörufyrirtækis hennar. Forbes segir að fjölskylda Jenner hafi beitt sér óeðlilega mikið fyrir því að ýkja það hve rík hún sé. Kylie Jenner er yngsta dóttir Kris Jenner og yngsta systir Kardashian systranna sem njóta mikilla vinsælda, meðal annars vegna raunveruleikaþáttanna Keeping up with the Kardashians. Jenner skrifaði á Twitter að Forbes hefði rangt fyrir sér og hafi engan grunn fyrir ásökununum. what am i even waking up to. i thought this was a reputable site.. all i see are a number of inaccurate statements and unproven assumptions lol. i ve never asked for any title or tried to lie my way there EVER. period— Kylie Jenner (@KylieJenner) May 29, 2020 „Ég hef aldrei sóst eftir neinum titli eða reynt að ljúga til að fá hann,“ skrifaði hún. even creating tax returns that were likely forged that s your proof? so you just THOUGHT they were forged? like actually what am i reading.— Kylie Jenner (@KylieJenner) May 29, 2020 „Ég get nefnt hundrað hluti sem eru mér mikilvægari akkúrat núna en að velta mér upp úr því hversu mikla peninga ég á.“ i can name a list of 100 things more important right now than fixating on how much money i have— Kylie Jenner (@KylieJenner) May 29, 2020 Forbes birti nafn Jenner á lista yfir ríkasta fólk heimsins árið 2019 og var hún þá yngsti „sjálfskapaði“ milljarðamæringur sögunnar. Hún var aðeins 21 árs gömul þegar hún hlaut þennan titil. Yfirlýsing Forbes um stöðu Jenner árið 2019 var gríðarlega gagnrýnd og sögðu gagnrýnendur það varla rétt að hún væri sjálfskapaður milljarðamæringur, enda væri hún hluti af Kardashian-Jenner fjölskyldunni sem hefði hagnast gríðarlega af raunveruleikaþáttunum um hana. Forbes sagði velgengni hennar mega rekja til snyrtivörumerkjalínu hennar, Kylie Cosmetic, sem hún stofnaði árið 2015. Snyrtivörumerkjalína skrifaði undir samning við Ulta Beauty sem jók virði fyrirtækisins en það var metið á 900 milljónir dollara árið 2019 og að fullu í eign Kylie Jenner. Hún seldi þó 51 prósenta hlut í fyrirtækinu til snyrtivörurisans Coty fyrir 600 milljónir dala í fyrra. Forbes segir nú endurskoðanda fjölskyldunnar hafa „reddað“ fyrirtækinu endurgreiðslur frá skattinum sem létu fyrirtækið virðast hafa selt vörur fyrir meira en 300 milljónir Bandaríkjadala árið 2016 og að fjölmiðlafulltrúi þeirra hafi haldið því fram að fyrirtækið hafi hagnast um 330 milljónir dala árið eftir. Þá hafi upplýsingar sem Coty birti gefið til kynna að fyrirtæki Jenner hafi verið „töluvert minna og tekjuminna en fjölskyldan hafði gefið í skyn,“ sagði í tilkynningu frá Forbes.
Hollywood Bandaríkin Samfélagsmiðlar Mest lesið Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Neytendur „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Viðskipti erlent Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Atvinnulíf Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Viðskipti erlent Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira