Leikmaður Liverpool á Zoom-fundum með efnilegum leikmönnum Bournemouth Anton Ingi Leifsson skrifar 19. maí 2020 22:00 Adam Lallana fagnar marki í leik gegn uppeldisfélaginu. vísir/getty
Miðjumaður Liverpool, Adam Lallana, hefur nýtt tímann vel á tímum kórónuveirunnar en hann hefur meðal annars rætt við unga og efnilega leikmenn uppeldisfélagsins, Bournemouth, í gegnum samskiptamiðilinn Zoom. Lallana er frá suðurströndinni og kom í gegnum unglingastarfið hjá Bournemouth áður en nágrannarnir í Southampton sóttu hann. Hann spilaði þó einnig með aðalliði Bournemouth þar sem hann kom þangað að láni frá Southampton áður en braust þar í gegn og fór svo til Liverpool. Miðað við viðtal við Alan Connell, U18-ára þjálfara Bournemouth, hefur Lallana ekki gleymt rótunum því hann nýtti frítíma sinn á dögunum í að spjalla við unga og efnilega leikmenn Bournemouth í gegnum Zoom en leikmennirnir höfðu fengið það verkefni að skoða leikskipulag Liverpool. Adam Lallana helps out Bournemouth youngsters during coronavirus lockdownhttps://t.co/MNU9fOKc5S pic.twitter.com/wFA6INWOZR— Mirror Football (@MirrorFootball) May 19, 2020 „Þegar við skoðuðum Liverpool hafði ég samband við Adam Lallana og var hann var mjög glaður að geta hjálpað okkur og talaði við leikmennina okkar. Hann er héðan og þetta kom sér vel fyrir leikmennina okkar,“ sagði Alan. „Hann gaf okkur líka innlit í hans þróun á yngri árum bæði hjá félagsliði og með landsliðinu,“ bætti Alan við en það var ekki bara Lallana úr ensku úrvalsdeildinni sem spjallaði við leikmennina því Matt Richie, leikmaður Newcastle og fyrrum leikmaður Bournemouth, talaði einnig við ungu strákana.
Enski boltinn Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA Sjá meira