Reyna að stöðva útbreiðslu veirunnar frá Rússlandi Samúel Karl Ólason skrifar 14. apríl 2020 10:13 Fjölmargir Kínverjar búa og vinna í Rússlandi. AP/Dong Baosen
Yfirvöld Kína vinna nú hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar teygi anga sína aftur til Kína. Fjöldi nýrra smita hefur greinst við landamæri Kína og Rússlands og hefur landamærunum verið lokað. Faraldurinn hófst í Kína en nú eru yfirvöld þar að reyna að koma í veg fyrir að nýja kórónuveiran berist frá öðrum ríkjum, sem eru mörg hver að berjast gegn umfangsmikilli útbreiðslu veirunnar. Smituðum hefur fjölgað hratt í Rússlandi að undanförnu. Sjá einnig: Mögulega nauðsynlegt að fá aðstoð hersins vegna kórónuveirunnar Þá hafa Kínverjar heimilað tvær tilraunir á mönnum vegna tveggja bóluefna sem verið er að þróa. Fjölmargir Kínverjar búa og vinna í Rússlandi og fara yfir landamærin í Heilongjianghéraði og Innri Mongólíu. Landamærin eru mjög löng og erfitt er að fylgjast með þeim. Ferðir yfir landamærin hafa nú verið bönnuð og hefur almenningi verið heitið verðlaunum fyrir ábendingar um aðila sem brjóti reglurnar og fari yfir landamærin. Fólk fær hærri verðlaun fyrir að góma þá sem brjóta reglurnar sjálft og handsama viðkomandi, samkvæmt frétt Reuters. Kínverjar opinberuðu í morgun að 89 ný smit hafi greinst á undanförnum sólarhring. Af þeim var í nánast öllum tilfellum um aðila að ræða sem voru að koma frá útlöndum. Enginn dó. Heilt yfir segjast Kínverjar hafa greint minnst 82.249 smit og 3.341 dauðsföll.
Kína Rússland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins Sjá meira