Formaður hkd. Hauka: HSÍ ætti að vera löngu búið að aflýsa öllum mótum Anton Ingi Leifsson skrifar 3. apríl 2020 08:00 Úr leik hjá Haukum í vetur. vísir/bára
Formaður handknattleiksdeildar Hauka, Þorgeir Haraldsson, setur mikla pressu á HSÍ að öll mót innan handboltahreyfingarinnar verði flautuð af vegna kórónuveirunnar. Handboltinn hefur verið í hléi vegna kórónuveirunnar frá því 12. mars en HSÍ hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort að klára eigi mótið í sumar eða blása tímabilið af eins og karfan gerði. Þorgeir setur inn pistil á Facebook-síðu Hauka fyrr í vikunni þar sem hann segir að staðan sem upp er komin hér heima eins og annarsstaðar sé merkileg. „Við erum nú í stöðu sem við höfum ekki upplifað áður og þá breytist margt eins og við öll finnum fyrir,“ skrifar Þorgeir í pistlinum. Hann tekur undir orð Gunnars Valgeirssonar, prófessors, sem skrifaði í Morgunblaðið á dögunum að við værum í íþróttafangelsi. Hann segir að það sé ekkert annað í stöðunni en að blása tímabilið af. „Það er mín skoðun að HSÍ ætti að vera löngu búið að aflýsa öllum mótum í handbolta þennan veturinn og hef ég lýst þeirri skoðun minni marg oft við framkvæmdastjóra HSÍ. Vonast ég til að það komi yfirlýsing þaðan nú um mánaðarmótin í síðasta lagi.“ „Við skulum ekki gera ráð fyrir neinni starfsemi hjá okkur í handboltanum næstu vikurnar og geri ég ekki ráð fyrir öðru en að yfirstandandi mót verði blásið af svo við getum farið að skipuleggja starfið og undirbúið liðin okkar fyrir næstu leiktíð.“ Allan pistil má sjá hér að neðan.
Íslenski handboltinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Íslenski boltinn Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Fleiri fréttir Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur „Var ekki langt frá því að tárast“ Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Sjá meira