Jeppar (SUVs) auka losun koltvísýrings ef marka má Rannsóknarsetur orkumála í Bretlandi (UKERC). Samkvæmt skýrslu setursins eru kröfur neytenda um stærri bíla skemma fyrir „grænu samgangna byltingunni“.
Skýrslan kveður á um að grípa þurfi til aðgerða strax. Bretar hafa sett sér markmiði um að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050. Þar telur UKERC að minni sala stærri bíla geti skilað miklum árangri.
Sala jeppa hefur verið á mikilli siglingu. Þeir voru 21,2% seldra bíla í Bretlandi 2018. Jeppar voru 13,5% af nýjum bílum árið 2015.
UKERC segir að jeppar losi fjórðungi meira en meðal stórir bílar, stærðar sinnar vegna. Þeir losa samkvæmt skýrslunni fjórum sinnum meira en meðal stórir rafbílar.

UKERC leggur til að dregið verði úr jarðefnaeldsneytisdrifnum bílum frá árinu 2030, tíu árum áður en ríkisstjórn Bretlands áætlar að banna slíka bíla.
„Stóraukin sala óþarflega stórra og orkufrekra bíla á síðustu árum gerir lítið úr stefnum Bretlands á vegferðinni sem kölluð hefur verið Road to Zero,“ samkvæmt prófessor Jillian Anabel einn af ritstjórum skýrslunnar.
Samkvæmt Alþjóðlegu orkumála stofnuninni (IEA) eru jeppar næst stærsti valdur aukinnar mengunar síðan 2010. Þeir hafa valdið meiri aukningu en flugsamgöngur, þungaiðnaður og skipaflutningar.