Heimamenn í Leganes komust yfir á 12. mínútu er Youssef En-Nesyri skoraði með frábæru skoti. Óverjandi fyrir Marc-Andre Ter Stegen.
Á áttundu mínútu síðari hálfleiks jafnaði Luis Suarez metin eftir fyrirgjöf Lionel Messi. Ekki í fyrsta skipti og væntanlega ekki í það síðasta sem þessir vinna saman að marki.
Sigurmarkið kom svo úr óvæntri átt en það skoraði Arturo Vidal ellefu mínútum fyrir leikslok. Eftir skoðun í VARsjánni var markið dæmt gott og gilt og tryggði Börsungum stigin þrjú.
They left it late!
Barcelona came from behind at bottom side Leganes to secure all three points.
https://t.co/enSZIothW8pic.twitter.com/UwFOx3sGU2
— BBC Sport (@BBCSport) November 23, 2019
Barcelona er með 28 stig á toppi deildarinnar en Real Madrid er í öðru sætinu. Madrídingar eiga þó leik til góða síðar í dag.
Leganes er á botni deildarinnar með sex stig, sjö stigum frá öruggu sæti.