Íslenska bandið Vök hitaði upp fyrir OMAM og var því allsherjar íslenskt þema í þýsku borginni þetta miðvikudagskvöld. Vök stóð sannarlega fyrir sínu og var tónleikasalurinn strax orðinn fullur þegar þau stigu á svið. Þjóðverjinn er reyndar mjög stundvís, annað en Íslendingurinn sem er oftar en ekki með seinni skipunum.
Huxleys Neue Welt er sögufrægur tónleikastaður í borginni en Adolf Hitler hélt meðal annars fræga ræðu í salnum árið 1930.

Fyrsta lagið sem OMAM tók á tónleikunum var lagið Alligator sem er vinsælasta lag þeirra á nýjustu plötunni Fever Dream sem kom út í maí á þessu ári. Það var því byrjað á bombu og salurinn strax kominn í gír.
Eins og svo oft vill verða kviknaði þráin hjá Íslendingum til að syngja með og var oft á tíðum sungið hátt og snjallt með lögunum. Það gerði undirritaður til að mynda nokkrum sinnum.
Ég fékk að heyra það frá þýskri miðaldra konu sem bað mig vinsamlegast um að koma mér í burtu frá henni. Niðurstaðan varð sú að hún færði sig.

Íslandsmet á Billboard-listanum
Það má með sanni segja að frá því að Of Monster and Men var stofnuð árið 2010 hefur sveitin gefið út fjölmarga slagara og stendur svo fyllilega undir heilum tónleikum með eigin lögum. Á þeim tíma sem OMAM var á sviðinu er hægt að taka saman níu lög sem eru algjörar neglur. Ekki mörg bönd sem geta gert slíkt hið sama.Of Monsters and Men hefur komist á topp tíu á Billboard-listann í Bandaríkjunum með öllum þremur plötum sem sveitin hefur gefið út. Það er afrek sem engir aðrir íslenskir tónlistarmenn hafa náð og reyndar ekki margir tónlistarmenn yfir höfuð.
Sennilega var ég pirrandi, en þetta er frábært lag, ég syng með.
Næsta lag, annar smellur. Mountain Sound sem einnig var mjög gott að syngja með. Ég var á minni eigin Þjóðhátíð. Brekkusöngur í Berlín.
Sveitin náði að blanda vel saman nýju lögunum og þeim þekktu og því var alltaf eitthvað fyrir bolinn. Þann sem þekkir í raun bara vinsælustu lögin. Ég er nett þar en nýja platan féll vel í kramið hjá Þjóðverjanum og öllum gestum tónleikanna. Næstu fimm lögin voru af nýju plötunni.
Þjóðverjinn datt í bullandi gír
Aftur á móti voru fimm síðustu lög tónleikanna, fyrir uppklapp, öll mjög þekkt og vinsæl. Sú rispa byrjaði með I of the Storm sem er mjög rólegt lag og þá var þögn í salnum. Ég hélt kjafti. Geggjaður flutningur.Næst hlóð bandið í lagið Crystals sem er eitt af mínum allra uppáhalds með sveitinni. Man þegar ég heyrði það fyrst að það náði mér strax. Ekki skemmir að leikaragoðsögnin Siggi Sigurjóns fer með aðalhlutverkið í textamyndbandinu.
Næstsíðasta lagið fyrir uppklapp og um leið lagið byrjaði varð allt vitlaust í salnum. Þarna fór Þjóðverjinn meira segja að hoppa og skoppa. Fékk sjálfur yfir mig töluvert magn af Vodka Red Bull. En ég kem sterkari til baka.
Eftir uppklapp voru tekin þrjú lög og tvö þeirra stóðu upp úr. Næst síðasta lagið var Dirty Paws. Algjörlega sturlaður flutningur og lag kvöldsins að mínu mati.
Nanna toppaði sig algjörlega undir lokin. Þá flutti hún lagið Waiting For The Snow og var flutningurinn einlægur og vægast sagt fallegur. Hann er til á YouTube og má sjá hér að neðan.