Messi setti upp sýningu í öruggum sigri Barcelona Arnar Geir Halldórsson skrifar 9. nóvember 2019 22:00 Þrenna vísir/getty Lionel Messi var munurinn á Barcelona og Celta Vigo þegar liðin áttust við á Nývangi í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Argentínumaðurinn knái opnaði leikinn með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en gestirnir náðu að jafna metin á 42.mínútu. Börsungar fóru engu að síður með forystu í leikhlé því Messi skoraði beint úr aukaspyrnu á lokamínútu fyrri hálfleiks. Messi fór svo langt með að gera út um leikinn með öðru marki beint úr aukaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks. Sergio Busquets gerði endanlega út um leikinn skömmu fyrir leikslok. Lokatölur 4-1 fyrir Barcelona sem trónir á toppi deildarinnar. Spænski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn