Konan handtekin í Osló Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2019 14:25 Lögregla skaut margoft að manninum á meðan á eftirförinni stóð. EPA
Lögregla í Osló hefur handtekið konuna sem lýst var eftir í tengslum við að vopnaður maður tók sjúkrabíl ófrjálsri hendi og ók á vegfarendur fyrr í dag. Frá þessu greindi lögregla í Noregi nú síðdegis. Sjúkrabílnum var ekið á barnavagn þar sem í voru sjö mánaða tvíburar, sem virðast hafa sloppið með minniháttar meiðsl. Sömuleiðis munaði minnstu að bílnum var ekið á eldri hjón sem voru á gangi. Norskir fjölmiðlar segja að ökumaðurinn hafi velt bílnum sínum við Rosenhoff í norðausturhluta Oslóar. Hann stakk þá af og miðaði skotvopni á vegfarendur. Vildi lögregla meina að kona hafi verið í bílnum með manninum. Sjúkrabíl var ekið á vettvang slyssins og æxluðust mál þannig að vopnaði maðurinn tók sjúkrabílinn ófrjálsri hendi og ók greiðlega á brott. Lögregla fylgdi sjúkrabílnum eftir, en sjúkrabílnum var þá ekið á barnavagninn nærri Sandaker Center, auk þess að minnstu munaði að honum var ekið á eldri hjónin. Lögregla skaut margoft að manninum á meðan á eftirförinni stóð. Þeim tókst að ná manninum við Krebs Gate í Torshov-hverfinu þar sem einnig var lagt hald á tvö skotvopn. Í kjölfarið var lýst eftir konunni, en lögregla taldi öruggt að hún hafi verið með manninum í bílnum sem valt. Hún hefur nú verið handtekin. Hin handteknu hafa bæði komið við sögu lögreglu áður.
Noregur Tengdar fréttir Stal sjúkrabíl og ók á fólk í Osló Maður stal sjúkrabíl og ekið á fólk í Osló í Noregi morgun. 22. október 2019 11:06 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Stal sjúkrabíl og ók á fólk í Osló Maður stal sjúkrabíl og ekið á fólk í Osló í Noregi morgun. 22. október 2019 11:06