Þar með stöðvuðu Norðmenn sigurgöngu Spánverja í undankeppni EM en fram að leiknum í kvöld höfðu Spánverjar unnið fjórtán leiki í röð.
Saul Niguez kom Spánverjum yfir í upphafi síðari hálfleiks en Norðmenn settu Spánverja undir pressu í síðari hálfleik.
Það skilaði árangri er liðið fékk víti í uppbótartíma. Á punktinn steig Joshua King og skoraði. Lokatölur 1-1.
DRAMA!
— BBC Sport (@BBCSport) October 12, 2019
Josh King has equalised in the dying moments against Spain!#Euro2020Qualifiers LIVE: https://t.co/WTCApXAhxjpic.twitter.com/eZeICvk9zI
Spánn er áfram á toppi riðilsins með 19 stig, Svíþjóð er í öðru sætinu með 14, Rúmenía í þriðja með 13 og Noregur í því fjórða með tíu.