Pólitískur andstæðingur Orban nýr borgarstjóri Búdapest Atli Ísleifsson skrifar 14. október 2019 12:24 Gergely Karacsony er nýr borgarstjóri ungversku höfuðborgarinnar. Getty
Frambjóðandi stjórnarandstöðunnar í Ungverjalandi vann sigur í borgarstjórakosningum í höfuðborginni Búdapest í gær. Gergely Karacsony vann þar sigur á Istvan Tarlos, sem gegnt hefur embætti borgarstjóra frá árinu 2010 og sem naut stuðnings hægrimannsins og forsætisráðherrans Viktor Orban. Stjórnarandstaðan vann sömuleiðis sigur í meirihluta hverfa höfuðborgarinnar svo hún verður einnig með meirihluta í borgarstjórn. Sigur hins frjálslynda Karacsony kom nokkuð á óvart og er þetta einn mesti pólitíski ósigur Orban frá því að hann komst til valda árið 2010. Stjórnarandsstöðuflokkar unnu sigra á fleiri stöðum í landinu og tryggðu sér borgarstjóraembætti í tíu af 23 þeim borgum þar sem slíkar kosningar fóru fram. Karacsony, sem er vinstrisinnaður og hallur undir Evrópusamstarf, kallaði sigurinn „sögulegan“. „Við munum færa borgina úr tuttugustu öldinni og inn í þá 21. Búdapest verður græn og frjáls. Við munum færa hana aftur til Evrópu.“ Fréttaskýrandi BBC segir að hneykslismál tengt Fidesz-manninum Zsolt Borkai, borgarstjóra Gyor, kunni að hafa skaðað kosningabaráttu Fidesz. Birtust myndir af hinum gifta Borkai á netinu þar sem mátti sjá hann taka þátt í kynsvalli á snekkju í Adríahafi.
Ungverjaland Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira