Portúgalskir sósíalistar lýsa yfir sigri Atli Ísleifsson skrifar 6. október 2019 20:27 Antonio Costa á kjörstað fyrr í dag. Hann tók við embætti forsætisráðherra árið 2015. Getty
Portúgalski stjórnarflokkurinn Sósíalistaflokkurinn vann „mikinn sigur“ í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í dag. Munu þeir sækjast eftir að mynda trygga ríkisstjórn til að stýra landinu næstu fjögur árin. Þetta sagði Ana Catarina Mendes, þingkona Sósíalistaflokksins, eftir að útgönguspár voru birtar fyrr í kvöld. Útgönguspárnar bentu til sigurs Sósíalistaflokksins, en að eitthvað vantaði upp á til að flokkurinn næði hreinum meirihluta. Spurningin nú sé með hverjum forsætisráðherrann Antonio Costa vill mynda stjórn. Í fjórum útgönguspám, sem birtar voru í kvöld, fær Sósíalistaflokkurinn á bilinu 33,3 til 40 prósent atkvæða, og má telja líklegt að flokkurinn bæti við sig þingsætum frá kosningunum 2015. Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Jafnaðarmannaflokkurinn, mælist með á bilinu 24 til 31 prósent samkvæmt útgönguspám. Í stjórnartíð Costa hefur efnahagur Portúgals batnað og hefur hagvöxtur í landinu mælst nokkuð meiri en meðaltal ESB-ríkja segir til um. Hefur ferðamannastraumurinn til landsins aukist, og það sama má segja um útflutning. Talið er að endanleg úrslit þingkosninganna muni liggja fyrir á næstu vikum.
Portúgal Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira