Talið er að ferðaþjónustufyrirtækið Thomas Cook sé á leið í gjaldþrotaferli og að 150 þúsund ferðamenn verði strandaglópar. Samkvæmt frétt The Guardian var hætt að selja flug á þeirra vegum um klukkan tíu í kvöld eftir að ljóst var að samningaviðræður um neyðarfjármagn hefðu ekki borið árangur.
Lánadrottnar breska ferðaþjónusturisans Thomas Cook funduðu í dag með stærstu hluthöfum fyrirtækisins á neyðarfundi í London. Í allan dag hafa farið fram samningaviðræður við fjárfestana um neyðarfjármagn. Reynt var að tryggja 200 milljóna punda innspýtingu á næstu dögum, jafnvirði 30 milljarða króna, til þess að forða félaginu frá gjaldþroti.
Thomas Cook er eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki heims og selur meðal annars ferðir til Íslands. Félagið hefur verið í rekstri í 178 ár. Talið er að um 150 þúsund breskir ferðalangar gætu orðið strandaglópar lýsi félagið yfir gjaldþroti. Samkvæmt frétt The Guardian er talið líklegt að allar 94 flugvélar fyrirtækisins verði kyrrsettar á morgun.
Verkalýðsfélag samgöngustarfsmanna í Bretlandi hefur hvatt ríkið til að grípa inn í og koma í veg fyrir að fyrirtækið fari á hausinn, en ef fyrirtækið verður gjaldþrota gætu allt að 20.000 manns misst vinnuna, þar af 9.000 manns í Bretlandi.
Í dag var tilkynnt að yfirvöld í Bretlandi munu fljúga ferðamönnum á vegum Thomas Cook ferðaþjónustunnar aftur til Bretlands, ef ferðaþjónustan verður gjaldþrota. Ljóst er að það verður flókið og erfitt verkefni. Samkvæmt heimildum ITV News verður áætlunin virkjuð í fyrramálið.
Talið að Thomas Cook verði gjaldþrota

Tengdar fréttir

Breska ríkið mun fljúga strandaglópum heim verði Thomas Cook gjaldþrota
Yfirvöld í Bretlandi munu fljúga ferðamönnum á vegum Thomas Cook ferðaþjónustunnar aftur til Bretlands, ef ferðaþjónustan verður gjaldþrota.

Örlög Thomas Cook gætu ráðist í dag
Lánadrottnar breska ferðaþjónusturisans Thomas Cook munu hitta stærstu hluthafa fyrirtækisins á neyðarfundi í London í dag þar sem gert er ráð fyrir að örlög félagsins muni ráðast. Ferðaþjónustufyrirtækið rambar á barmi gjaldþrots.