Real Madrid fékk nýliða Osasuna í heimsókn í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en bæði lið voru taplaus eftir fimm umferðir þegar kom að leiknum í kvöld.
Brasilíska ungstirnið Vinicius Jr. kom Real Madrid yfir í fyrri hálfleik og annað brasilískt ungstirni gulltryggði sigurinn þar sem Rodrygo kom Real Madrid í 2-0 í síðari hálfleik.
Thibaut Courtois og Eden Hazard þurftu að gera sér sæti á varamannabekknum að góðu í kvöld og komu ekkert við sögu. Sama gildir um Karim Benzema og þá var Gareth Bale fjarri góðu gamni vegna leikbanns.
Real Madrid á toppi deildarinnar með eins stigs forystu á nágranna sína í Atletico Madrid.
Real Madrid endurheimti toppsætið með sigri á nýliðunum
