Segir yfirlýsingar lögreglufélaga ámælisverðar

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu vegna yfirlýsinga lögreglufélaga um mál er varða einkennisfatnað, bílamiðstöð ríkislögreglustjóra og fleira.
Jafn framt segir að þar sem dómsmálaráðuneytið hafi tekið ákvörðun um að leggja niður bílamiðstöð ríkislögreglustjóra í júlí síðastliðnum sé ekki ástæða til þess að ráðuneytið taki mál miðstöðvarinnar til skoðunar en skipaður hefur verið vinnuhópur til þess að koma með tillögur um nýtt fyrirkomulag á þeim málum og skilanefnd til þess að annast uppgjör á bílamiðstöðinni.
Ríkislögreglustjóri fagnar tímabærri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar enda hafði embættið frumkvæði að því að óska eftir úttekt.
Í ljósi þess að framangreind atriði eru þegar í eðlilegum farvegi eru ályktanir lögreglufélaga ekki til þess fallnar að skapa frið um störf lögreglunnar og yfirlýsingar til að ala á ótta um að ágreiningur geti bitnað á endanum á öryggi almennings eru ámælisverðar.
Tengdar fréttir

Sérsveitarmönnum bannað að beita bílum í aðgerðum
Sérsveitarmenn mega ekki nota lögreglubíla til að stöðva ökutæki samkvæmt ákvörðun sem Haraldur Jóhannessen, ríkislögreglustjóri tók fyrr á þessu ári.

Lögregluþjónar fyrir norðan styðja úttekt hjá ríkislögreglustjóra
Stjórnir Lögreglufélags Eyjafjarðar (LFE) og Lögreglufélags Þingeyinga (LÞ) lýsa yfir stuðningi við stjórn Landssambands lögreglumanna (LL) varðandi alhliða stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra.

Greiddu 82 milljónir fyrir fjóra lögreglubíla á þremur árum
Lögreglan á Norðurlandi vestra telur sig hafa verið ofrukkaða um hátt í tvö hundruð prósent af bílamiðstöð ríkislögreglustjóra vegna leigu á lögreglubifreiðum.

Ríkislögreglustjóra skylt að innheimta 200 milljónir umfram rekstrarkostnað
Ríkislögreglustjóra er skylt að innheimta árlega um 200 milljónir króna umfram rekstrarkostnað lögreglubifreiða í ríkissjóð.

Misræmi í málflutningi Ríkislögreglustjóra um bílamiðstöð
Ríkislögreglustjóra er skylt að innheimta árlega um 200 milljónir króna umfram rekstrarkostnað lögreglubifreiða í ríkissjóð. Svo virðist sem nokkuð misræmi sé í málflutningi embættisins um málefni bílamiðstöðvar sem ákveðið hefur verið að loka.

Úttekt gerð á embætti Ríkislögreglustjóra í heild sinni
Ríkisendurskoðun hefur fallist á beiðni um stjórnsýsluúttekt á embætti Ríkislögreglustjóra í heild sinni.

Fleiri lögreglufélög fagna úttekt á ríkislögreglustjóra
Lögreglufélag Suðurnesja lýsir yfir stuðningi við ákall Landssambands lögreglumanna um úttekt á embætti ríkislögreglustjóra.

Blöskraði ummælin og er hættur í lögreglufélaginu eftir fjóra áratugi
Ásgeir Karlsson, yfirmaður greiningardeildar Ríkislögreglustjóra, hefur ákveðið að segja sig úr Lögreglufélagi Reykjavíkur eftir að hafa verið í því í fjörutíu og eitt ár.