Í stað þess að stöðva hóf Ator skothríð úr hálfsjálfvirkum riffli og lögreglubílinn og særði einn lögregluþjón. Ator flúði af vettvangi og tók að endingu póstbíl Mary Granados. Hann var stöðvaður fyrir utan kvikmyndahús í Odessa og skotinn til bana. Tveir lögregluþjónar til viðbótar særðust í skotbardaga við hann.
Hann hringdi þar að auki í Neyðarlínuna á meðan á árás hans stóð.
Sjá einnig: Árásarmaðurinn í Texas hafði nýverið verið rekinn
Christopher Combs, frá FBI, segir ódæði Ator eiga langan aðdraganda og andlegu ástandi hans hafi farið hrakandi. Combs sagðist þó ekki vita hvort hann hafi átt við geðræn vandræði að stríða.
„Við vorum hrædd við hann því maður gat séð á honum hvernig manneskja hann var. Hann var ekki indæll. Hann var ekki vinalegur. Hann var ekki kurteis,“ segir Rocio Gutierrez.
Ekki liggur fyrir hvernig Ator varð sér út um byssuna sem hann notaðist við en yfirvöld hafa sagt að hann hafi ekki staðist bakgrunnsskoðun við byssukaup. Þó er ekki vitað hvenær það var.
Vinur fjölskyldu Ator, sem New York Times ræddi við, segir hann hafa lengi átt við geðræn vandamál að stríða, hann hafi lengi verið á kant við laganna verði og hann hefði aldrei átt að hafa aðgang að byssum.