Lærisveinar Lars Lagerbäck í norska landsliðinu gerðu jafntefli við granna sína frá Svíþjóð í undankeppni EM 2020 í kvöld.
Það voru gestirnir frá Noregi sem komust yfir í Stokkhólmi þegar Stefan Johansen skoraði á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.
Svíar jöfnuðu metin á 60. mínútu með marki frá Emil Forsberg.
Hvorugu liði tókst að finna sigurmark og skildu þau því jöfn 1-1.
Í sama riðli eru Spánverjar enn með fullt hús stiga eftir öruggan sigur á Færeyjum á heimavelli.
Rodrigo kom Spánverjum yfir eftir aðeins þrettán mínútna leik og staðan var 1-0 í hálfleik. Hann bætti svo öðru marki við á 50. mínútu.
Í uppbótartíma gerði Paco Alcacer tvö mörk sem gengu endanlega frá leiknum þó sigur Spánverja hafi aldrei verið í hættu.
Spánverjar eru á toppi riðilsins með 18 stig eftir sex umferðir. Svíar eru með 11, Rúmenar 10 og Norðmenn 9. Malta og Færeyjar sitja svo á botninum, Malta með þrjú stig en Færeyjar ekkert.
Lars náði í jafntefli í heimalandinu
