Flott skot í Blöndu IV Karl Lúðvíksson skrifar 26. ágúst 2019 08:18 Sindri með 91 sm hænginn úr Blöndu 4
Það hafa fáar fréttir borist af svæði fjögur í Blöndu en það er að margra mati eitt skemmtilegasta svæðið í ánni. Félagarnir Daníel Friðriksson, Hrannar Þór Hallgrímsson, Jón Arnar Ólafsson, Óskar Örn Arnarsson, Örn Sigurðarson og Sindri Pálsson voru þar við veiðar og þeim gekk vel á svæðinu og sáu mikið líf. ALls var tíu löxum landað og þar af tveimur sleppt en til viðbótar var sett í aðra sjö sem sluppu af. Allt var þetta frekar bjartur smálax fyrir utan einn 91 sm höfðingja sem sést á meðfylgjandi mynd og var sá stærsti í hollinu. "Á fyrstu vaktinni komu 2 laxar á land. Urðum vitni af 15-20 laxa torfu í göngu renna sér með miklum látum í einn hylinn og stökk hann grimmt. Líklega með tálknin full af gróðri þar sem áin var eins óslegið tún nema í dýpstu hyljunum, gróðurinn var svo svakalegur.sagði Sindi í samtali við Veiðivísi. "Áin var full af fiski og sáum við fisk í flestum merktum stöðum, reyndum við þó ekkert við staði í efsta þriðjung svæðisins. Gríðarlega skemmtilegar tökur, en laxinn var að taka litlar flugur á hröðu strippi í djúpum hyljum." Það er vonandi að Blanda eigi gott haust inni því heildarveiðin þar hefur verið mun minni en síðustu ár og þá sérstaklega á efri svæðunum en það virðist vera gott magn af laxi á svæðinu svo þeir sem eiga daga framundan eiga vonandi góða veiði.
Mest lesið Nýjar tölur úr flestum laxveiðiánum heldur daprar Veiði Ný glær flotlína frá Airflo Veiði Veiðikortið 2016 komið út Veiði Gengur vel í Gljúfurá í Borgarfirði Veiði Kvikmyndahátíð veiðimanna RISE á laugardaginn Veiði Veitt út mánuðinn í Ytri-Rangá Veiði Fjórar ár komnar yfir 1000 laxa Veiði Lax að veiðast í Hítará þrátt fyrir erfið skilyrði Veiði Mokveiði og frítt í Frostastaðavatn Veiði Laxar á Breiðunni í Elliðaánum Veiði