Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:
1. sæti
2. sæti
3. sæti
4. sæti
5. sæti
6. sæti - (30. ágúst)
7. sæti - Stjarnan
8. sæti - ÍR
9. sæti - KA
10. sæti - HK
11. sæti - Fram
12. sæti - Fjölnir

Stjarnan vill meira og kaupin á Ólafi Bjarka Ragnarssyni og Tandra Má Konráðssyni sýna það. Þeir fylla skörð Arons Dags Pálssonar og Egils Magnússon sem eru farnir. Ólafur Bjarki og Tandri eru tveir af fimm í leikmannahópi Stjörnunnar sem voru í Íslandsmeistaraliði HK 2012.
Stjarnan var með þriðju bestu hlutfallsmarkvörsluna í Olís-deildinni á síðasta tímabili en báðir markverðir liðsins frá því í fyrra eru horfnir á braut. Í staðinn eru komnir Brynjar Darri Baldursson, sem hefur búið erlendis undanfarin ár, og Stephen Nielsen frá ÍR.
Rúnar Sigtryggsson er mjög fær þjálfari, leikmannahópurinn er sterkur, reynslan í liðinu er mikil en það þarf að kveikja einhverja glóð til að Stjarnan taki framförum og rífi sig upp úr meðalmennskunni.
Komnir/Farnir:
Komnir:
Ólafur Bjarki Ragnarsson frá West Wien
Tandri Már Konráðsson frá Skjern
Andri Þór Helgason frá Fram
Hannes Grimm frá Gróttu
Stephen Nielsen frá ÍR
Brynjar Darri Baldursson
Farnir:
Egill Magnússon til FH
Aron Dagur Pálsson til Alingsås
Sigurður Ingiberg Ólafsson til ÍR
Andri Hjartar Grétarsson hættur
Garðar Benedikt Sigurjónsson hættur
Sveinbjörn Pétursson hættur

Sóknarleikur Stjörnunnar 2018/19 í tölum HBStatz
Mörk skoruð í leik - 8. sæti (26,6)
Skotnýting - 11. sæti (55,1%)
Vítanýting - 9. sæti (71,9%)
Hraðaupphlaupsmörk - 9. sæti (52)
Stoðsendingar í leik - 7. sæti (9,3)
Tapaðir boltar í leik - 6. sæti (8,3)
Vörn og markvarsla Stjörnunnar 2018/19 í tölum HBStatz
Mörk fengin á sig í leik - 10. sæti (28,2)
Hlutfallsmarkvarsla - 3. sæti (32,5%)
Varin víti - 3. sæti (15)
Stolnir boltar - 12. sæti (53)
Varin skot í vörn - 4. sæti (51)
Lögleg stopp í leik - 10. sæti (16,7)

Markvörður - Stephen Nielsen - 34 ára
Vinstra horn - Andri Þór Helgason - 25 ára
Vinstri skytta - Tandri Már Konráðsson - 29 ára
Miðja - Ólafur Bjarki Ragnarsson - 30 ára
Hægri skytta - Ari Magnús Þorgeirsson - 33 ára
Hægra horn - Leó Snær Pétursson - 27 ára
Lína - Hannes Grimm - 20 ára
Varnarmaður - Bjarki Már Gunnarsson - 30 ára

Andri Már Rúnarsson (f. 2002) öðlaðist dýrmæta reynslu á síðasta tímabili. Hann fékk tækifæri í Stjörnusókninni og var oft látinn inn á þegar Garðbæingar spiluðu óhefðbundna útgáfu af sjö á móti sex.
Andri er skynsamur leikstjórnandi, með góða tækni, býr yfir miklum leikskilningi og er með handboltagenin. Hann er þó enn frekar rýr og á eftir að bæta líkamlegan styrk.

Rúnar Sigtryggsson er á sínu öðru tímabili með Stjörnuna. Hann er afar reyndur þjálfari og auk Stjörnunnar hefur hann stýrt Þór og Akureyri og Eisenach, Aue og Balingen-Weilstetten í Þýskalandi.
Rúnar lék yfir 100 landsleiki og var í íslenska landsliðinu sem endaði í 4. sæti á EM 2002. Hann varð Íslandsmeistari með Val og Haukum og lék með spænska stórliðinu Ciudad Real þar sem hann vann Evrópukeppni bikarhafa.
„Þar eru við að tala um Tandra sem hefur litið mjög vel út í þeim leikjum sem ég hef séð og Ólaf Bjarka sem meiddist reyndar strax. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Rúnar mætir með liðið til leiks. Ég reikna með því að hann mæti með liðið í betra formi en í fyrra því hann gaf sér fram í nóvember í fyrra til að koma þeim í stand. Ég reikna með því að hann komi með þá í formi strax í byrjun móts. Spennandi tímar en svolítil spurningarmerki um hvernig þetta þróast hjá þeim,“ sagði Guðlaugur.

... varð Íslandsmeistari: Aldrei
... varð deildarmeistari: Aldrei
... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 20 ár (1999)
... varð bikarmeistari: 12 ár (2007)
... komst í bikarúrslit: 6 ár (2013)
... komst í úrslitakeppni: 0 ár (2019)
... komst í undanúrslit: Aldrei
... komst í lokaúrslit: Aldrei
... féll úr deildinni: 4 ár (2015)
... kom upp í deildina: 3 ár (2016)
Gengi Stjörnunnar í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil:
2018-19 8. sæti í deildinni
2017-18 7. sæti í deildinni
2016-17 9. sæti í deildinni
2015-16 B-deild (1. sæti)
2014-15 9. sæti í deildinni
2013-14 B-deild (2. sæti)
2012-13 B-deild (2. sæti)
2011-12 B-deild (3. sæti)
Gengi Stjörnunnar í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil:
2018-19 Átta liða úrslit
2017-18 Átta liða úrslit
2016-17 Ekki í úrslitakeppni
2015-16 B-deild
2014-15 Ekki í úrslitakeppni
2013-14 B-deild
2012-13 B-deild
2011-12 B-deild

Ef Stjarnan ætlar að gera betur en í fyrra verður vörnin að vera betri og skila fleiri hraðaupphlaupum. Þrátt fyrir að vera með þriðju bestu markvörsluna fengu aðeins tvö lið á sig fleiri mörk en Stjarnan á síðasta tímabili.
Tandri ætti að styrkja varnarleikinn og Stjarnan er með tvo af bestu varnarmönnum deildarinnar í honum og Bjarka Má Gunnarssyni. En Garðbæingar geta ekki treyst á að markvarslan verði jafn góð og í fyrra. Langt er síðan Brynjar Darri spilaði og Stephen hefur ekki verið góður í nokkur ár.
Stjarnan getur líka bætt sóknarleikinn og þarf að nýta færin mun betur í fyrra. Stjörnumenn voru með næstslökustu skotnýtinguna í deildinni á síðasta tímabili. Ólafur Bjarki var besti leikmaður deildarinnar síðast þegar hann lék hér á landi en hefur verið mikið meiddur undanfarin ár og missir af fyrstu leikjum tímabilsins vegna puttabrots. Þá má Stjarnan ekki við því Ari Magnús Þorgeirsson missi af jafn mörgum leikjum og í fyrra.
Fyrir síðasta tímabil spáði Rúnar því að Stjörnuliðið yrði ekki almennilega tilbúið fyrr en í nóvember. Hann reyndist sannspár og fyrsti sigurinn kom ekki fyrr en í 5. umferð. Stjörnumenn ættu að vera í betra formi en fyrir ári síðan og þurfa að byrja betur ef þeir ætla að ógna liðunum sem er spáð að endi fyrir ofan þá.