Bresk stúlka hvarf í fjölskyldufríi í Malasíu Sylvía Hall skrifar 4. ágúst 2019 17:58 Nora ásamt móður sinni. Facebook
Ekkert er vitað um afdrif hinnar fimmtán ára gömlu Noru Quoirin sem hvarf í fjölskyldufríi í Malasíu. Þegar fjölskylda hennar vaknaði í morgun var Nora horfin og gluggi hótelherbergis hennar opinn. Þetta kemur fram á vef BBC. Fjölskyldan hafði komið ferðast frá Bretlandi og komu til Malasíu í gær. Þau höfðu áætlað að dvelja í Malasíu í tvær vikur, nánar tiltekið í bænum Seremban nærri regnskóunum við borgarmörk Kuala Lumpur. Átti fjölskyldufríið að vera „ferð lífsins“ í fallegu umhverfi. Fjölskyldan, sem hefur búið í Bretlandi í tvo áratugi en er upprunalega frá Írlandi, innritaði sig á hótelið í gær við komuna og fóru í háttinn. Martröðin hófst svo þegar þau vöknuðu í morgun og stúlkan var hvergi sjáanleg. Þau segja það ólíkt henni að láta sig hverfa en Nora glímir við námsörðugleika. Lögreglan leitar nú stúlkunnar og notast við leitarhunda við leitina. Írska utanríkisráðuneytinu hefur verið gert viðvart og veitir viðeigandi aðstoð við leitina.Fréttin hefur verið uppfærð.
Bretland Malasía Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Sjá meira