Lögreglan í Noregi skaut mann til bana Gígja Hilmarsdóttir skrifar 5. ágúst 2019 21:20 Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu. Vísir
Maður á sjötugsaldri var í kvöld skotinn til bana af lögreglumönnum í Noregi. Atvikið átti sér stað í smábænum Jaren, norðvestur af Osló. Heilbrigðisstarfsfólk sem kom til mannsins í heilsufarsvitjun kallaði eftir aðstoð lögreglu í hádeginu í dag. Eftir um átta klukkustunda samningaviðræður við manninn færðist hasar í leikinn og lögregla þurfti að hleypa af byssuskoti með þeim afleiðingum að maðurinn lést. Þetta kemur fram á vef norska fréttastofunnar TV2. Ógnaði lögreglu með sveðju Pål Erik Teigen, lögreglustjóri, sagði í samtali við VG fréttastofuna, lögreglumenn ekki hafa óttast að atvikið væri svo alvarlegt þegar þeir fóru á vettvang. Enda lögregla er oft kölluð til í slíkum heilsufarsvitjunum. Þegar á staðinn var komið fór maðurinn að ógna lögreglu með sveðju og sló til lögreglumanna með þeim afleiðingum að einn lögreglumannanna fékk lítinn skurð við augað.Réðst á lögreglumann með keðjusög „Við reyndum að ná sambandi við manninn en það var ekki hægt að ná sambandi við hann,“ sagði Teigen. Lögreglan á vettvangi kallaði eftir frekari liðsauka þar á meðal sérsveitina. Eftir fjölda tilrauna til að reyna að ná til mannsins meðal annars með notkun piparúða og raflostsvopn ógnaði maðurinn lögreglumanni með keðjusög og var maðurinn skotinn í kjölfarið klukkan 19:45 að staðartíma eða tæpum átta klukkustundum eftir að lögregla kom á vettvang. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Málið er í rannsókn. Teigen segir lögreglu ekki vita hvað manninum gekk til en vitað er að maðurinn var mikill einfari. Jafnframt kemur fram að hann hafi áður komið við sögu lögreglu.
Noregur Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira