Hann segist sjálfur vera mikill safnari og safni mikið af plötum, bókum og antíkmunum af ýmsum toga.
Lagasöfn sem Sævar hefur sett saman hafa gengið manna á milli á netinu, en þau eiga það flest sameiginlegt að vera uppfull af fágætum gersemum frá sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Drungalegar þjóðlagaperlur og skynvillupopp eru þar í fyrirrúmi.
Svipaða sögu má segja um Spotify-lista sem Sævar setur saman í tómstundum, og sjaldheyrð lög sem hann hleður inn á Youtube-rásir sínar (sem má nálgast hér og hér).
Þessa dagana vinnur hann að því að klára framleiðslu á fatalínu ásamt því að þróa þá næstu.
„Ég mun stækka vöruúrval og svo verður einnig hægt að sérpanta flíkur sem verða aðeins sérgerðar. Einnig er verið að vinna að netverslun fyrir flíkurnar og fleira og svo önnur skemmtileg verkefni á teikniborðinu.“
Sævar er virtur fatahönnuður og hefur sem dæmi hannað kjóla fyrir heimsþekktu tónlistarkonuna Melody Prochet úr Melody’s Echo Chamber.
Listann segir Sævar vera samansafn af lögum sem finna má í plötusafni sínu og hann hefur verið að hlusta á upp á síðkastið, bæði heima hjá sér og í vinnustofu sinni.
„Samt sem áður er þetta bara brot af því, listinn hefði getað orðið mun lengri,“ segir Sævar en listinn er þó ríflegur, heil sjötíu lög.
Hann bætir við að hann hafi safnað plötum frá ellefu ára aldri og þyki „fátt skemmtilegra en að rannsaka fyrri tímabil sögunnar, hvort sem það er þá tónlist, myndlist, fornmunir,“ eða þar fram eftir götunum.