Sjáðu pirringinn, svekkelsið og svo fögnuðinn þegar Trínidadar reyndu við skallaþrautina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2019 23:30 Leikmenn Trínidad og Tóbagó. Getty/Hannah Foslien
Æfingin skapar meistarann og það átti sjaldan betur við en hjá nokkrum landsliðsmönnum Trínidad og Tóbagó á dögunum. Átta leikmenn landsliðsins sem tók þátt í Gullbikarnum á dögunum ákváðu að reyna við skallaþrautina frægu í frítíma sínum á mótinu. Þessi þraut reyndist hins vegar þeim afar erfið. Úr varð aftur á móti skemmtilegt myndband sem FIFA birti á fésbókarsíðu sinni eins og sjá má hér fyrir neðan. Þar má sjá pirringinn, svekkelsið og svo svaka fögnuð þegar takmarkið náðist loksins. Landslið Trínidad og Tóbagó skoraði aðeins eitt mark í þremur leikjum sínum á mótinu sem kemur væntanlega þeim ekki mikið á óvart sem horfðu á myndbandið hér fyrir ofan. Eina mark Trínidad og Tóbagó kom í 1-1 jafntefli við Gvæjana í lokaleiknum og það skoraði Kevin Molino. Trínidadar áttu heimsmet í meira en tíu ár áður en Ísland tók það af þeim en fyrir þátttöku Íslands á HM í Rússlandi var Trínidad og Tóbagó fámennasta þjóðin sem hafði tekið þátt í heimsmeistaramóti í knattspyrnu. Trínidad og Tóbagó var með á HM í Þýskalandi árið 2006. Liðið endaði þar í 27. sæti eftir eitt jafntefli og tvö töp í þremur leikjum. Trínidadar höfðu tekið metið af Norður-Írum sem áttu það frá 1958 til 2006.
HM 2022 í Katar Trínidad og Tóbagó Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fleiri fréttir Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Sjá meira