Fundu lík huldukonu fimm mánuðum eftir að hún lést í íbúð sinni Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. júlí 2019 21:42 Þá hefur VG eftir nágrönnum konunnar að hún hafi verið afar einræn. Mynd tengist fréttinni ekki beint. Vísir/EPA
Kona, sem enginn virðist vita nokkur deili á, fannst nýlega látin í félagsíbúð í Osló. Talið er að konan hafi látist í febrúar og því lá lík hennar í íbúðinni í fimm mánuði áður en það fannst. Greint er frá málinu á vef norska dagblaðsins VG. Í frétt VG er haft eftir talsmanni lögreglu í Osló að málið sé til rannsóknar hjá umdæminu sökum þess að enginn virðist vita nein deili á konunni. Ekki er þó talið að andlát hennar hafi borið að með saknæmum hætti. Þá hefur VG eftir nágrönnum konunnar að hún hafi verið afar einræn og ekki átt í neinum samskiptum við nágranna sína. Nafn hennar hafi ekki verið á póstkassa hennar og engin í húsinu hafi vitað hvað hún hét. Konan fékk jafnframt ekki félagsþjónustu frá borginni, sem hún hafði rétt á sem íbúi hússins. Fulltrúi borgaryfirvalda í Osló segir í samtali við VG að yfirvöld hefðu átt að sjá til þess að hún nyti þjónustunnar. Þá hefði enn fremur ekki liðið svo langur tími frá því að hún lést og þar til lík hennar fannst.
Noregur Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira