Sumarbirtan veldur svefnleysi Florealis ehf kynnir 6. júní 2019 08:45 Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, doktor í líf- og læknavísindum og vörustjóri Florealis. LEIFUR WILBERG
Yfir björtustu mánuði ársins upplifa margir svefntruflanir. Þessi mikla birta allan sólarhringinn gerir okkur erfitt fyrir að sofna og hvílast á nóttunni. ,,Birtan hefur bein áhrif á heilann því hún hemur framleiðslu hormóna sem gera okkur syfjuð. Við verðum því minna þreytt þegar við erum umvafin birtu allan sólarhringinn. Það þýðir samt ekki að við þurfum að hvílast minna. Svefninn er enn jafn mikilvægur þó að það sé bjart úti,” segir Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, doktor í líf- og læknavísindum og vörustjóri Florealis. Florealis hefur sett á markað jurtalyfið Sefitude við svefntruflunum og vægum kvíða.Sefitude frá Florealis er eina lyfið á Íslandi við svefntruflunum og vægum kvíða sem fæst án lyfseðils í apótekum.Svefntruflanir algengar á sumrinSvefntruflanir eru meðal algengustu heilsuvandamála fólks sem býr á norðurhveli jarðar. Mikill birtustigsmunur á milli árstíða hefur þar áhrif. Yfir björtustu mánuðina er fólk lengur að sofna, það sefur skemur, vaknar oftar á nóttunni og hreyfir sig meira í svefni. Svefninn styttist sífellt og svefnskuld byggist upp. Langvinnur svefnskortur hefur bein áhrif á líðan okkar og getur valdið vanlíðan, depurð og kvíða. Því er ekki óalgengt að fólk upplifi andlega vanlíðan yfir sumartímann þrátt fyrir sól og gott veður. Svefntruflanir eiga oft þátt í því. ,,Sumt fólk sefur varla á sumrin þrátt fyrir að reyna öll möguleg ráð eins og að forðast mikla birtu á kvöldin, sofa með svefngrímu og halda sig við reglulegan háttatíma. Oft dugir það bara ekki til,” segir Sandra Mjöll.Eina lyfið án lyfseðils við svefntruflunumSefitude frá Florealis er eina lyfið á Íslandi við svefntruflunum og vægum kvíða sem fæst án lyfseðils í apótekum. ,,Sefitude bætir gæði svefns og styttir tímann sem það tekur að sofna. Það er ætlað þeim sem eiga erfitt með að sofna, eða eru lengi að sofna, og þeim sem vakna oft á nóttunni. Sefitude hentar mjög vel þeim sem upplifa svefntruflanir á sumrin,” segir Sandra. Sefitude inniheldur útdrátt úr garðabrúðurót (Valeriana) en róandi áhrif jurtarinnar hafa lengi verið viðurkennd og staðfest í klínískum samanburðarrannsóknum. ,,Sefitude er tekið inn á hverju kvöldi og hjálpar viðkomandi að slaka á og sofna. Það dregur líka úr vægum kvíða og hefur róandi áhrif. Það er hvorki sljóvgandi né ávanabindandi og má nota allt frá 12 ára aldri.”Gagnlegar upplýsingarSefitude fæst án lyfseðils í öllum apótekum. Það er staðsett á bak við afgreiðsluborðið. Notkun við svefntruflunum: 1 tafla ½-1 klst fyrir svefn fyrir fullorðna og ungmenni eldri en 12 ára. Notkun við vægum kvíða: 1 tafla 1-3 sinnum á dag fyrir fullorðna og 1 tafla 1-2 á dag fyrir ungmenni 12-18 ára. Ekki ráðlagt börnum yngri en 12 ára, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Leitið læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkun. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.isÞessi kynning er unnin í samstarfið við Florealis ehf.
Heilsa Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Myndaveisla: Bylgjulestin kvaddi sumarið á Flúðum Súrdeigsbrauðdrottningin breytti pítsadeigi í þriggja rétta grillveislu Ekki ofpeppast í áfenginu, plastpoka á táslurnar og forðast tjörnina Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Bylgjulestin brunar á Flúðir Í festival gír með Icewear Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Vissir þú að JYSK selur bleikan útilegustól? Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Myndir frá Selfossi þar sem Bylgjulestin var í beinni Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Hitavörn, blástursvörn eða UV-vörn? Hvað þarf hárið þitt í raun og veru? Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Glæsilegir vinningar í boði í Sumarleik Kjarnafæðis Bylgjulestin brunar á Kótelettuna Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Sjá meira