Þúsundir hafa smitast af menguðu vatni á Askøy Atli Ísleifsson skrifar 9. júní 2019 17:54 Tæplega 30 þúsund manns búa í sveitarfélaginu Askøy í Hörðalandi. Getty
Þúsundir íbúa í sveitarfélaginu Askøy í Hörðalandi á vesturströnd Noregs hafa veikst á síðustu dögum eftir að hafa drukkið mengað vatn. Sérfræðingar frá Lýðheilsustofnun Noregs eru nú á staðnum til að aðstoða í tilraunum yfirvalda að ná stjórn á faraldrinum.Norskir fjölmiðlar segja að íbúar á Askøy, sem er að finna norðvestur af Bergen, hafi síðustu mánuðina kvartað til yfirvalda vegna gruggugs og mislits drykkjarvatns. Á síðustu dögum hafa svo um tvö þúsund manns veikst og hefur það lýst sér í hita, uppköstum og niðurgangi. Á fimmta tug einstaklinga hafa neyðst til að leggjast inn á sjúkrahús og eru tólf börn í þeirra hópi. Á miðvikudaginn lést eins árs barn á Haukeland háskólasjúkrahúsinu í Bergen þó að enn hafi ekki fengist staðfest hvort að andlátið tengist mengaða vatninu. Fulltrúar sveitarfélagsins telja að vatnshreinsilaug hafi mengast og fékkst staðfest í gær að þrjár tegundir saurgerla hafi fundist þar, meðal annars E.coli. Þá hafa saursýni úr sjúklingum sýnt fram á leifar af kampýlóbakter. Fyrr í dag var haldinn fréttamannafundur þar sem fram kom að ekki hafi enn tekist að ná stjórn á útbreiðslunni og var því beint til íbúa að sjóða allt drykkjarvatn. Þá skulu þeir sem eru með opin sár forðast að baða sig í baðkari.
Noregur Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira