Rússneski „njósnamjaldurinn“ verði mögulega fluttur til Íslands Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. maí 2019 18:00 Mjaldurinn vinalegi áður en beislið var tekið af honum. Vísir/EPA
Sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun Noregs segir að hinn meinti rússneski njósnamjaldur, sem komst í heimsfréttirnar í vikunni, verði mögulega fluttur í hvalaathvarf á Íslandi. Það myndi auka lífslíkur mjaldursins. Þetta kemur fram í umfjöllun Washington Post um mjaldurinn sem birtist í dag. Mjaldurinn fannst úti fyrir Finnmörku í síðustu viku og vakti þar sérstaka athygli sökum þess hversu gæfur hann var og enn fremur vegna beislis sem hann hafði utan um sig. Þótti beislið benda til þess að mjaldurinn hefði verið þjálfaður af rússneska sjóhernum, mögulega til njósna. Þeirri kenningu er enn haldið á lofti þó að Rússar hafi gefið lítið fyrir hana í samtölum við fjölmiðla undanfarna daga. Nú síðast var greint frá því að mjaldurinn héldi til í firðinum Tufjord á eyjunni Rolvsøya í Finnmörku. Þar leikur hann listir sínar, leyfir fólki að klappa sér og syndir eftir fiski. Vill ekki fara Haft er eftir Jørgen Ree Wiig, sérfræðingi hjá Hafrannsóknarstofnun Noregs sem fylgst hefur með mjaldrinum undanfarna daga, að lítil hreyfing hafi verið á honum í liðinni viku. Hann hafi aðeins ferðast samtals um 40 kílómetra leið á umræddu tímabili og sitji enn sem fastast í Tufjord. Norsk stjórnvöld velti því nú fyrir sér hvað eigi að gera við mjaldurinn en Wiig segir að einn möguleiki í stöðunni sé að flytja hann til Íslands, á sérstakt verndarsvæði fyrir hvali. Með því „aukist lífslíkur mjaldursins“. Wiig fer ekki nánar út það hvar á Íslandi umrætt verndarsvæði er en gera má ráð fyrir að þarna sé átt við hvalaathvarfið í Klettsvík við Vestmannaeyjar. Framkvæmdir við 1600 tonna laug fyrir mjaldrana tvo frá Kína eru langt komnar í Vestmannaeyjum.Vísir/Sighvatur Hægt að taka við fleiri mjöldrum í Eyjum Þegar eru væntanlegir tveir mjaldrar frá Kína í hvalaathvarfið, þær Litla-Hvít og Litla-Grá, sem fyrst um sinn munu dvelja í stórri laug, svokallaðri „gestastofu“ sædýrasafnsins í Vestmannaeyjum. Sjá einnig: Komu mjaldranna frestað þangað til veður leyfir Um er að ræða hvalabjörgunarverkefni á vegum samtakanna Sea Life Trust og fyrirtækisins Merlin Entertainments, en mjaldrarnir frá Kína eru sýningarhvalir úr skemmtigarði. Verkefnin snúa að því að koma slíkum hvölum, þ.e. hvölum sem hafa verið í haldi manna, í manngerðar kvíar þar sem þeir fá að synda frjálsir. Þá hefur verið gefið út að hægt verði að taka við fleiri mjöldrum í Vestmannaeyjum í framtíðinni. Njósnamjaldurinn í Noregi gæti þannig komið til greina í slíkt verkefni en ljóst þykir að hann hafi verið lengi í haldi manna og hafa sérfræðingar lýst yfir áhyggjum af því hvernum honum muni farnast úti í náttúrunni. Svara á morgunPáll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja, hafði ekki heyrt af neinum þreifingum vegna mjaldursins í Noregi þegar Vísir náði tali af honum í dag en vísaði á fulltrúa samtakanna sem sjá um mjaldraverkefnið. Andrew Boocock, fjölmiðlafulltrúi sem hefur svarað fyrir verkefnið, segir að vænta megi svara við fyrirspurn Vísis um málið á morgun. Þá hefur Vísir einnig sent fyrirspurn á Jørgen Ree Wiig hjá Hafrannsóknarstofnun Noregs vegna mjaldursins. Afdrif mjaldursins eru því enn óljós en hann er þó orðinn afar vinsæll í Noregi. Nú síðast efndi norska ríkisútvarpið NRK til nafnasamkeppni en þar geta aðdáendur m.a. valið milli nafnanna Hvaldimir, Agent James Beluga og White Russian. Könnunina má nálgast hér og verða niðurstöður um hið óformlega nafnaval birtar á hádegi að norskum tíma á morgun.
Dýr Mjaldrar í Eyjum Noregur Vestmannaeyjar Mjaldurinn Hvaldimír Tengdar fréttir Grunsamlegur mjaldur í norskri landhelgi talinn þjálfaður af Rússum til hernaðar Mjaldrinum var veitt sérstök eftirtekt þar sem hann hafði utan um sig beisli, sem sérfræðingar telja að sé til þess að festa á myndavél eða vopn. 29. apríl 2019 10:23 „Heldurðu virkilega að við myndum hengja á hann símanúmer?“ Mjaldur, sem fannst í norskri landhelgi í vikunni og er talinn á vegum rússneska sjóhersins, hefur leikið listir sínar fyrir íbúa Tufjord í Noregi undanfarna daga. Rússneskur ofursti gefur lítið fyrir þær fullyrðingar að mjaldurinn sé gerður út til njósna af rússneska hernum. 30. apríl 2019 12:47 1600 tonna laug getur nýst fleiri mjöldrum Flutningi tveggja mjaldra til Eyja hefur verið seinkað um óákveðinn tíma vegna lokunar Landeyjahafnar og slæmrar veðurspár. Til stóð að flytja hvalina frá Sjanghæ í Kína á þriðjudag. Á meðan heldur undirbúningur áfram í Eyjum þar sem nýtt sædýrasafn hefur risið í tengslum við verkefnið. 13. apríl 2019 18:45 Dýralæknar meta hvort mjaldrar sigla frá Þorlákshöfn Komu tveggja mjaldra til Vestmannaeyja gæti seinkað vegna stöðu í samgöngumálum milli lands og Eyja. Ráðgert er að flytja mjaldrana ríflega 9.000 kílómetra leið frá sædýrasafni í Sjanghæ í Kína til Heimaeyjar á þriðjudag. Síðasti leggurinn átti að vera rúmlega hálftíma sigling frá Landeyjahöfn sem er enn lokuð og líklega verður siglt úr Þorlákshöfn. 11. apríl 2019 19:30 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira
Grunsamlegur mjaldur í norskri landhelgi talinn þjálfaður af Rússum til hernaðar Mjaldrinum var veitt sérstök eftirtekt þar sem hann hafði utan um sig beisli, sem sérfræðingar telja að sé til þess að festa á myndavél eða vopn. 29. apríl 2019 10:23
„Heldurðu virkilega að við myndum hengja á hann símanúmer?“ Mjaldur, sem fannst í norskri landhelgi í vikunni og er talinn á vegum rússneska sjóhersins, hefur leikið listir sínar fyrir íbúa Tufjord í Noregi undanfarna daga. Rússneskur ofursti gefur lítið fyrir þær fullyrðingar að mjaldurinn sé gerður út til njósna af rússneska hernum. 30. apríl 2019 12:47
1600 tonna laug getur nýst fleiri mjöldrum Flutningi tveggja mjaldra til Eyja hefur verið seinkað um óákveðinn tíma vegna lokunar Landeyjahafnar og slæmrar veðurspár. Til stóð að flytja hvalina frá Sjanghæ í Kína á þriðjudag. Á meðan heldur undirbúningur áfram í Eyjum þar sem nýtt sædýrasafn hefur risið í tengslum við verkefnið. 13. apríl 2019 18:45
Dýralæknar meta hvort mjaldrar sigla frá Þorlákshöfn Komu tveggja mjaldra til Vestmannaeyja gæti seinkað vegna stöðu í samgöngumálum milli lands og Eyja. Ráðgert er að flytja mjaldrana ríflega 9.000 kílómetra leið frá sædýrasafni í Sjanghæ í Kína til Heimaeyjar á þriðjudag. Síðasti leggurinn átti að vera rúmlega hálftíma sigling frá Landeyjahöfn sem er enn lokuð og líklega verður siglt úr Þorlákshöfn. 11. apríl 2019 19:30