Fjórir leikmenn Spurs mæta sínu gamla félagi í kvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2019 07:39 Belgarnir Vertonghen og Alderweireld að módelstörfum. vísir/getty
Tottenham Hotspur tekur á móti Ajax í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fjórir fyrrverandi leikmenn Ajax eru í herbúðum Tottenham og líklegt er að þeir byrji allir inn á í kvöld. Þetta eru þeir Jan Vertonghen, Christian Eriksen, Toby Alderweireld og Davinson Sánchez.@ChrisEriksen8@daosanchez26@JanVertonghen@AlderweireldTob Our ex-@AFCAjax contingent. #UCL#COYSpic.twitter.com/Hzw6bo9wrx — Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) April 29, 2019 Tottenham keypti Vertonghen, Eriksen og Sánchez frá Ajax en Alderweireld var hjá Atlético Madrid og Southampton áður en hann fór til Spurs. Tottenham keypti Vertonghen frá Ajax 2012. Síðan þá hefur hann leikið 282 leiki fyrir Lundúnaliðið og skorað tíu mörk. Eriksen kom til Spurs frá Ajax 2013. Sá danski hefur leikið 271 leik fyrir Tottenham og skorað 65 mörk. Á þessu tímabili hefur hann skorað níu mörk í 45 leikjum í öllum keppnum. Tottenham keypti Sánchez frá Ajax 2017. Kólumbíumaðurinn er dýrasti leikmaður í sögu Spurs en félagið borgaði um 42 milljónir punda fyrir hann. Sánchez hefur leikið 75 leiki fyrir Tottenham og skorað eitt mark. Atlético Madrid keypti Alderweireld frá Ajax 2013. Hann varð Spánarmeistari með liðinu á sínu fyrsta tímabili en var svo lánaður til Southampton. Þaðan fór Alderweireld svo til Tottenham. Belginn hefur leikið 159 leiki fyrir Spurs og skorað sex mörk. Leikur Tottenham og Ajax hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.Eriksen varð þrívegis hollenskur meistari með Ajax.vísir/getty
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Sjá meira