Bergrún Íris handhafi nýrra barnabókaverðlauna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. apríl 2019 15:45 Bergrún Íris Sævarsdóttir hefur lengi haft áhuga á barnabókum og til að mynda myndskreytt þær margar. fréttablaðið/sigtryggur ari
Bergrún Íris Sævarsdóttir varð í dag fyrsti handhafi nýrra barnabókaverðlauna sem kennd eru við Guðrúnu Helgadóttur. Verðlaunin eru veitt fyrir frumsamið handrit að barna- eða ungmennabók og fær Bergrún verðlaunin í ár fyrir handritið Kennarinn sem hvarf. Í tilkynningu segir að fjölmörg handrit hafi borist í samkeppni um verðlaunin og var úr vöndu að ráða fyrir dómnefndina sem skipuð var þeim Sabine Leskopf, Höllu Þórlaug Óskarsdóttur og Dröfn Vilhjálmsdóttur. Þá komu einnig fjórir nemendur af unglingastigi Seljaskóla að dómnefndarstörfum. Bók Bergrúnar kemur út í maí og verður gefin út af Bókabeitunni. Um Kennarann sem hvarf segir í tilkynningu:Bergrún við afhendingu verðlaunanna í dag.Vísir/Egill„Sagan ber um margt einkenni úr höfundarverki Guðrúnar Helgadóttur með sér, hún er hlý og talar beint til barna, inn í þeirra heim og dæmir ekki. Að mati dómnefndar tekst höfundi áreynslulaust að skapa atburðarás sem er í senn beint úr raunveruleika barna en samt svo sérstök og ævintýraleg að það vekur athygli og spennu.“ Þá segir að Bergrún Íris hafi alltaf haft áhuga á barnabókum en áhuginn hafi kviknað fyrir alvöru þegar hún varð sjálf móðir haustið 2009. „Hún hefur myndskreytt fjölmargar barnabækur og námsefni, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Fyrsta rithöfundarverk Bergrúnar var barnabókin Vinur minn, vindurinn árið 2014 og var hún tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs,“ segir í tilkynningu. Eftirfarandi höfundar fengu svo Bókmenntaverðlaun Reykjavíkurborgar 2019 en þau eiga það öll sameiginlegt að skapa höfundarverk fyrir ungmenni þar sem aðalpersónurnar lenda í ævintýrum sem rekja má til atburða í fortíðinni: Hildur Knútsdóttir við afhendinguna í dag.Hildur Knútsdóttir fær verðlaunin fyrir LjóniðVerðlaun fyrir bestu frumsömdu bókina á árinu 2018 koma í hlut Hildar Knútsdóttur fyrir bókina Ljónið sem er fyrsta bókin í nýjum þríleik. Hildur er margfaldur verðlaunahöfundur sem sló rækilega í gegnum með bókum sínum Vetrarfrí og Vetrarhörkur sem þýddar hafa verið á fjölmörg tungumál. Ljónið er hörkuspennandi ungmennasaga sem gerist í samtímanum en teygir anga sína aftur til ógnvekjandi atburða. Sagan fjallar um Kríu sem er að byrja í Menntaskólanum í Reykjavík. Þar þekkir hún engan og hún hefur litlar væntingar til skólans. Brátt kynnist hún Elísabetu, og þrátt fyrir strangt nám er menntaskólalífið frábært. Þegar Elísabet finnur gamalt skrín í földum skáp fara þær vinkonurnar að rannsaka undarlegt mál stúlku sem hvarf sporlaust fyrir 79 árum. Það kemur í ljós að hvarf stúlkunnar gæti haft óvænta tengingu við líf Kríu. Að mati dómnefndar er Ljónið lágstemmd unglingabók sem virkilega leynir á sér, bókin sjálf sé bæði undurfalleg og mikil, textinn einkar vel skrifaður og nostursamlega unninn. Útgefandi Ljónsins er JPV forlagið.Guðni Kolbeinsson ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.Guðni Kolbeinsson fyrir vandaða þýðingu á Villimærinni fögruGuðni Kolbeinsson fær verðlaun fyrir þýðingu á Villimærinni fögru eftir Philip Pullman og er þetta í þriðja skipti sem hann hlýtur barnabókaverðlaunin fyrir þýðingar sínar. Í rökstuðningi dómnefndar segir að hér sé á ferðinni í senn vönduð, falleg og hugvitssöm þýðing sem færir íslenskum lesendum ævintýrabókmenntir eins og þær gerast bestar á okkar ástkæra og ylhýra máli. Villimærin fagra er fyrsta bókin í þríleik Pullmans, Bækur duftsins um Malcolm Polstead. Guðni er margverlaunaður þýðandi og hlaut Sögustein IBBY árið 2015 fyrir framlag sitt til barnabóka og barnamenningar. Útgefandi Villimærinnar fögru er JPV forlagið.Myndríkur Skarphéðinn DungalRán Flygering fær nú í annað sinn Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar sem myndhöfundur, að þessu sinni fyrir bókina Sagan um Skarphéðin Dungal sem setti fram nýjar kenningar um eðli alheimsins sem hún gerði með Hjörleifi Hjartarsyni. Í umsögn dómnefndar segir að myndir Ránar Flygenring í bókinni séu stílhreinar, grafískar og á tíðum abstrakt. Þær sýni heiminn út frá sjónarhorni flugunnar Skarphéðins og dragi vel fram áherslur sögunnar. Samspil lita og uppsetningar skapi fallega og kraftmikla heild sem einnig fangar ljóðræna frásögn bókarinnar. Rán starfar sjálfstætt að verkefnum víða um heim, myndskreytir og ritstýrir bókverkum. Útgefandi verðlaunabókarinnar er Angústúra.
Bókmenntir Mest lesið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Lífið Fleiri fréttir Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira