ISIS-leiðtogi sést í fyrsta skiptið í fimm ár Birgir Olgeirsson skrifar 29. apríl 2019 23:01 Ekki er vitað hvenær myndbandið var tekið upp en samtökin segja það hafa verið í apríl.
Hryðjuverkasamtök sem kenna sig við íslamskt ríki hafa sent frá sér myndband af manni sem þau fullyrða að segja leiðtogi samtakanna, Abu Bakr al-Baghdadi. Í myndbandinu heitir Baghdadi að leita hefnda vegna svæðis sem samtökin hafa glatað. Baghdadi hefur ekki sést í fimm ár, en árið 2014 steig hann fram og lýsti því stofnun kalífadæmis á svæðum í Sýrlandi og Írak. Í þessu myndbandi gengst Baghdadi við því að samtökin hafi tapað Baghuz, síðasta vígi þeirra á svæðinu. Ekki er vitað hvenær myndbandið var tekið upp en samtökin segja það hafa verið í apríl. Var myndbandið birt á miðli samtakanna, al-Furqan. Baghdadi fullyrðir að hryðjuverkaárásin í Srí Lanka á páskadag hafi verið hefnd samtakanna eftir að þau misstu bæinn Baghuz í Írak. Greint er frá því á vef breska ríkisútvarpsins BBC að í fyrri fullyrðingum samtakanna um ábyrgð þeirra á ódæðinu í Srí Lanka hafi hvergi verið minnst á bæinn. Baghdadi segist hafa fengið stuðning frá herskáum hópum í Burkina Faso og Mali og segir að heilagt stríð sé eina lausnin gegn harðstjórum. Hann hverfur þó við lok myndbandsins og heyrist aðeins ræða árásirnar í Srí Lanka. Síðast heyrðist til Baghdadi á hljóðupptöku sem var opinberuð í ágúst síðastliðnum þar sem hann virtist reyna að beina athygli frá lamandi tjóni sem samtökin höfðu orðið fyrir.
Írak Sýrland Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Fleiri fréttir Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Sjá meira