Alba tryggði Barcelona sigur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. apríl 2019 20:45 Jordi Alba fagnaði marki sínu vel vísir/getty Barcelona hélt áfram för sinni að öðrum Spánarmeistaratitilinum í röð með eins marks sigri á Real Sociad í kvöld. Fyrsta mark leiksins kom á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Clement Lenglet skoraði markið með skalla eftir hornspyrnu Ousmane Dembele. Á 62. mínútu náðu gestirnir að jafna leikinn. Mikel Merino átti frábæra stungusendingu inn á Juanmi sem kláraði færið. Gestirnir gátu hins vegar ekki fagnað lengi því aðeins tveimur mínútum seinna komust Börsungar aftur í forystu. Það gerði Jordi Alba með frábæru skoti úr teignum. Fleiri urðu mörkin ekki, 2-1 sigur Barcelona í höfn. Börsungar eru nú með níu stiga forskot á Atletico Madrid þegar fimm leikir eru eftir. Spænski boltinn
Leik lokið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Leik lokið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn