Maður vopnaður sverði skotinn í kirkju Vísindakirkjunnar Samúel Karl Ólason skrifar 28. mars 2019 15:15 Svo virðist sem að maðurinn hafi einnig verið vopnaður byssu en tveir lögregluþjónar sem sendir voru á vettvang hlutu skotsár. AP/Reed Saxon
Lögregluþjónar skutu mann til bana sem gekk vopnaður stóru sverði inn í kirkju Vísindakirkjunnar í Inglewood í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Svo virðist sem að maðurinn hafi einnig verið vopnaður byssu en tveir lögregluþjónar sem sendir voru á vettvang hlutu skotsár. Lögreglan hefur þó ekki staðfest að maðurinn hafi verið vopnaður öðru en sverði. Lögregluþjónarnir eru ekki í lífshættu, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.LA Times segir lögregluna ekki hafa sagt hvað gerðist inn í kirkjunni og verið sé að rannsaka hvort maðurinn hafi verið vopnaður skotvopni. Það sem hefur komið fram er að maðurinn keyrði upp að kirkjunni og gekk þar inn með sverð. Fimm manns voru í anddyri kirkjunnar þegar manninn bar að garði. Hann hefur ekki verið nafngreindur. Vísindakirkjan hefur sent frá sér tilkynningu þar sem lögreglunni er hrósað fyrir skjót og góð viðbrögð. Árið 2008 skaut öryggisvörður mann til bana í Los Angeles sem ógnaði meðlimum Vísindakirkjunnar með tveimur sverðum fyrir utan kirkju þar í borg. Sá maður, Mario Mjorski, var fyrrverandi meðlimur kirkjunnar og var hann skotinn af öryggisverði þegar hann hljóp á eftir öðrum verði með sverðið í hendinni.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira