Tiger lagði Aaron Wise, nýliða ársins á PGA-mótaröðinni, í fyrsta leik þar sem að Tiger bauð upp á eitt ótrúlegasta högg sem sést hefur í langan tíma.
Hann lenti upp við vegg og út í runna við flötina á tíundu holu en brautin er par fjögur. Það var lítið mál fyrir Tiger sem að fór á hnén, sneri kylfunni öfugt en náði samt sem áður að setja boltann rétt við holuna og pútta svo fyrir pari.
Þetta virtist taka Wise úr sambandi því hann þrípúttaði á næstu holu og aftur á 17. holunni sem gerði það að verkum að Tiger vann leikinn. Hann tapaði aftur á móti fyrir Brandt Snedeker og stefnir allt í að Tiger verji ekki titilinn sinn á mótinu.
Höggið ótrúlega má sjá hér að neðan.