Handbolti

Fimm íslensk mörk í sigri Elverum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigvaldi í leik með íslenska landsliðinu
Sigvaldi í leik með íslenska landsliðinu vísir/getty
Íslendingalið Elverum styrkti stöðu sína á toppi úrvalsdeildarinnar í norska handboltanum í dag þegar liðið vann öruggan sigur á Kolstad.

Línumaðurinn Þráinn Orri Jónsson og hægri hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson voru á sínum stað í liði Elverum sem hafði töluverða yfirburði en staðan í leikhléi var 13-7 fyrir Elverum.

Fór að lokum svo að Elverum vann átta marka sigur, 28-20.

Sigvaldi skoraði þrjú mörk og Þráinn Orri bætti við tveimur en Elverum hefur tveggja stiga forystu á Arendal í toppbaráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×