Sjálfsmorðsárásarmaður JeM felldi um fjörutíu herþjálfaða Indverja í Pulwaka í indverska hluta Kasmír fyrir tæpum tveimur vikum. Árásin hefur gert erfið samskipti Indlands og Pakistans enn verri. Ríkin hafa átt í deilu um Kasmír í áratugi og í kjarnorkukapphlaupi frá því á áttunda áratugnum. Indverjar kenndu Pakistönum um Pulwama-árásina og sögðu þá leyfa starfsemi JeM að viðgangast þar í landi.
Togstreitan er mikil eftir árás gærdagsins. Indverskir og pakistanskir hermenn skutu hvorir á aðra í gær við mörkin í Kasmír, samkvæmt því sem upplýsingafulltrúi indverska varnarmálaráðuneytisins sagði. „Pakistanar brutu gegn vopnahléinu með stuttri skothríð og Indverjar svöruðu í sömu mynt.“
Indverski miðillinn Times of India sagði loftárásina marka kaflaskil. Í fyrsta sinn í áratugi hafa Indverjar farið svo langt yfir línuna í Kasmír til að gera árás. Það var, samkvæmt miðlinum, ekki einu sinni gert í Kargil-stríðinu árið 1999 þegar á annað þúsund fórust í vopnaviðskiptum ríkjanna.
Samkvæmt heimildum miðilsins féllu allt að 350 JeM-liðar í árásinni en enginn almennur borgari, enda búðirnar fjarri byggð. „Hryðjuverkamennirnir höfðu ekki hugmynd um að Balakot væri skotmarkið. Sofandi hryðjuverkamenn áttu aldrei séns,“ var haft eftir heimildarmanni.

„Þegar við horfðum upp á yfirvofandi hættu áttuðum við okkur á því að fyrirbyggjandi árásir væru lífsnauðsynlegar. Þess vegna réðumst við á þessar búðir,“ bætti Gokhale við.
En tvær hliðar eru á sögunni og frásögn Pakistana stangast á við það sem Indverjar sögðu í gær. Asif Ghafoor, hershöfðingi og upplýsingafulltrúi pakistanska hersins, sagði frá því að pakistanski flugherinn hefði flogið á móti Indverjum um leið og þeir komu inn fyrir mörkin og hrakið vélarnar indversku á brott. Þá sagði hann sömuleiðis að enginn hefði farist í árásinni.
Ghafoor var ómyrkur í máli og tók fram að þótt sjö áratugir væru liðnir frá því að Pakistan klauf sig frá Indlandi gætu Indverjar ekki enn sætt sig við sjálfstæði landsins.

Aukinheldur er einfaldlega undarlegt að skella sökinni á Pakistan, samkvæmt Ghafoor. Indverjar hefðu stranga öryggisgæslu á hinum eiginlegu landamærum í Kasmír og ættu þarlend stjórnvöld því að spyrja hermenn sína hvernig sjálfsmorðsárásarmaður hafi komist yfir línuna.
Ghafoor sagði Pakistana ekki vera að undirbúa stríð en þeir ættu rétt á að svara stríðsundirbúningi Indverja.
„Við höfum varið landið okkar gegn hryðjuverkamönnum og erum reynslunni ríkari. Það var erfitt að eiga við ósýnilegan óvin. Indverjar eru engin ógn. Við höfum fylgst með ykkur í sjötíu ár, horft á ykkur, undirbúið okkur fyrir ykkur. Svar okkar verður miðað að ykkur. Við óskum þess ekki að fara í stríð en þið skulið vita að ef þið stígið fyrsta skrefið munuð þið aldrei geta komið okkur á óvart.“

Eftir fundinn héldu fjármála-, varnarmála-, og utanríkisráðherra Pakistans blaðamannafund. Shah Mahmood Qureshi utanríkisráðherra sagði að Pakistanar myndu svara árás Indverja þegar hentaði. „Þriggja manna nefnd hefur verið skipuð sem í eru fjármálaráðherra og varnarmálaráðherra ásamt mér. Við munum leita til þingsins svo pakistanska þjóðin geti treyst stjórn okkar á ástandinu.“
Þá sagði Qureshi að fjölmiðlum yrði gefinn aðgangur að árásarsvæðinu. „Ef veður leyfir verða fjölmiðlar fluttir þangað svo þeir geti skoðað svæðið og uppljóstrað um áróður Indverja. Sagan sem þeir segja stangast á við staðreyndir málsins,“ sagði ráðherra og bætti við: „Í enn eitt skiptið hafa Indverjar ákveðið að fleygja fram óábyrgri og rangri fullyrðingu.“
Pervez Khattak ráðherra sagði svar við árásinni í undirbúningi á öllum sviðum stjórnkerfisins og Qureshi lauk fundinum með því að segja að þótt Pakistan væri ábyrgðarfullt og friðsælt ríki væru stjórnvöld meðvituð um mikilvægi þess að standa vörð um landamæri sín. „Ekki vanmeta pakistanskar herþotur.“