Kjósa um mál á netinu sem gæti sprengt stjórnarsamstarfið Atli Ísleifsson skrifar 17. febrúar 2019 23:45 Luigi Di Maio, leiðtogi Fimm stjörnu hreyfingarinnar, Giuseppe Conte forsætisráðherra og Matteo Salvini, leiðtogi Bandalagsins. Getty
Ítalski stjórnarflokkurinn Fimm stjörnu hreyfingin stendur nú fyrir atkvæðagreiðslu á netinu meðal flokksmanna um mál sem gæti sprengt stjórnarsamstarfið. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar mun ráða því hvort að öldungadeildarþingmenn flokksins muni koma í veg fyrir sakamálarannsókn á máli tengdu Matteo Salvini, innanríkisráðherra og leiðtoga Bandalagsins (Lega). Fimm stjörnu hreyfingin og Bandalagið eru bæði í hópi þeirra flokka sem saman mynda meirihluta á ítalska þinginu. Hafa komið upp ýmis mál síðustu mánuði sem hafa valdið núningi í stjórnarsamstarfinu.Sakaður um mannrán og valdníðslu Salvini var í ágúst á síðasta ári sakaður um mannrán og valdníðslu þegar hann kom í veg fyrir að 150 flóttamenn um borð í ítölsku strandgæsluskipi fengu að ganga á land í fimm daga. Rannsóknin var lögð niður en saksóknari á Sikiley vill nú að rannsóknin verði tekin upp að nýju. Salvini hefur beint því til dómsmálanefndar þingsins að stöðva málið. Leiðtogar Fimm stjörnu hreyfingarinnar hafa í málflutningi sínum lagt mikla áherslu á að stjórnmálamenn skuli ekki skipta sér af réttarkerfinu. Þá hefur flokkurinn einnig lagt áherslu á mikilvægi beins lýðræðis þar sem kjósa skuli um mikilvæg mál í atkvæðagreiðslum, til dæmis á netinu.
Ítalía Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira