Geir: Það er ýmislegt í umhverfinu síðasta daga Anton Ingi Leifsson skrifar 9. febrúar 2019 16:50 Geir í pontu í dag. vísir/daníel
Geir Þorsteinsson, heiðursformaður KSÍ, sem tapaði formannsslagnum gegn Guðna Bergssyni segir að hann hafi fengið skýr skilaboð frá félögunum eftir kosninguna í dag. Guðni hafði betur með yfirburðum gegn Geir en Guðni fékk 81% atkvæðanna er ársþingið fór fram í 73. skiptið í Reykjavík í dag. „Ég fann að þetta var brekka,“ sagði Geir í samtali við Eirík Stefán Ásgeirsson um leið og það var orðið ljóst að hann hefði tapað slagnum. En hvernig fann hann það? „Það er ýmislegt í umhverfinu síðasta daga og inngrip forseta UEFA. Það er eitt og annað sem sagði mér það.“ Var kosningabaráttan neikvæðari en hann hafði búist við? „Já, ég held það. Við höfum aldrei kynnst þessari miklu athygli í knattspyrnunni áður. Þetta er bara nútíminn og ég sætti mig við það.“ Geir hefur talað fyrir nýrri sýn í í íslenskri knattspyrnu og sagði Guðni í ræðu sinni að hlustað yrði á þá aðila sem vildu íslensku knattspyrnunni vel. En hvað með hugmyndir Geirs? „Þær eru komnar á borðið og mér sýnist þær nú þegar hafa virkað því það var allt samþykkt sem ÍTF lagði til. Við verðum að þróa íslensk knattspyrnufélög ef við ætlum ekki að staðna.“ „Ég er alveg viss um það að mínar hugmyndir muni vinna á til lengri tíma,“ en hver verður aðkoma Geirs að íslenskri knattspyrnu héðan í frá? „Alveg sú sama. Það eru margir sem halda að heiðursformaðurinn sitji fundi og sé þarna en ég er í hópi með Eggerti Magnússyni og Ellerti Schram. Við mætum á leiki og ég mun áfram styðja íslenska knattspyrnu.“ „Einnig mun ég halda áfram að vinna að verkefnum erlendis. Félögin geta haft samband við mig og þeir sem eru að vinna að uppbyggingu íslenskrar knattspyrnu. Ég er með fullt af hugmyndum.“ „Ég hef hrint mörgu í verk en það eru skýr skilaboð til mín frá félögunum. Þau vilja að ég verði áfram heiðursformaður og vilji ekki að ég verði að skipta mér að þessu daglega stússi.“ Hvað tekur nú við hjá Geir? „Ég er svo ungur maður að ég veit ekkert hvað ég geri í framtíðinni. Við verðum að sjá til. Núna er þetta í höndunum á Guðna. Ég óska honum til hamingju og vona að honum gangi vel.“ „Þetta er mikil ábyrgð að sinna þessu starfi og ég óska honum alls hins besta,“ sagði Geir að lokum.
KSÍ Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti Segja Ronaldo hafa misst af leik til að sleppa við svipuhögg Fótbolti „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Enski boltinn Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Gæti fengið bann sem gildir um allan heim Fótbolti Hafnarfjörður keypti Skessuna fyrir 1.190 milljónir Fótbolti „Eins manns dauði er annars brauð“ Handbolti Ofurtölvan setur Liverpool á toppinn og Arsenal ofar Real Madrid Fótbolti Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Fleiri fréttir Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Sjá meira