Ársgamall drengur látinn eftir slys á leikskólanum Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. janúar 2019 13:02 Frá Bergen. Mynd/Getty
Ársgamall drengur lést á sjúkrahúsi í Bergen í Noregi eftir slys á leikskóla í borginni í byrjun janúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu, sem send var út í morgun í samráði við foreldra drengsins. Slysið varð þann 3. janúar síðastliðinn en í frétt NRK segir að drengurinn hafi fallið úr barnavagni á leikskólanum Akasia Paradis í Bergen. Við fallið flæktist band utan um háls drengsins og hlaut hann alvarlega áverka. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu lá drengurinn í barnavagninum inni í herbergi á ungbarnadeild leikskólans. Enginn fullorðinn var í herberginu þegar slysið varð. Þá er ekki vitað hversu lengi drengurinn lá í vagninum eða hversu lengi hann hékk í bandinu áður en hann fannst. Drengurinn var fluttur á Haukeland-háskólasjúkrahúsið í Bergen í kjölfar slyssins og lést þar eftir langa legu. Lögregla rannsakar nú slysið og tildrög þess en fjölmargir hafa verið yfirheyrðir í tengslum við málið. Leikskólar í Noregi hafa margir endurskoðað verkferla sína í kringum hvíldartíma barna í kjölfar slyssins.
Noregur Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira