Aðstæður miklu betri hérna í Hollandi en ég hef áður vanist Hjörvar Ólafsson skrifar 8. janúar 2019 17:30 Anna Björk við undirskriftina í gær en hún verður í treyju númer 23. mynd/psv
Anna Björk Kristjánsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, gekk í gær í raðir hollenska liðsins PSV Eindhoven. Við sama tilefni var belgíska landsliðskonan Davinia Vanmechelen kynnt til leiks hjá hollenska liðinu, en hún kemur frá franska stórliðinu PSG. Liðið var sett á laggirnar árið 2012 og hefur síðan þá farið tvisvar sinnum í úrslitaleik bikarkeppninnar þar sem liðið laut í lægra haldi í bæði skiptin. Liðið er hins vegar á góðri leið með að tryggja sér hollenska meistaratitilinn í vor, en besti árangur liðsins í efstu deildinni til þessa er þriðja sæti. Anna Björk kemur til liðsins frá sænska liðinu Limhamn Bunkeflo, en þessi öflugi varnarmaður gaf það út eftir að síðustu leiktíð lauk í Svíþjóð að hún hygðist róa á önnur mið. Nú er komið í ljós hver næsti áfangastaður hennar verður. Auk þess að hafa leikið með Limhamn Bunkeflo hefur hún leikið með Örebro og þar áður KR og Stjörnunni. Þá hefur hún leikið 40 landsleiki fyrir Íslands hönd. Anna Björk er að ganga til liðs við lið sem trónir á toppi hollensku efstu deildarinnar þegar 14 umferðir hafa verið leiknar af 24, en liðið hefur fjögurra stiga forskot á Twente á meðan hlé er á deildarkeppninni þar í landi. Fyrirkomulagið í Hollandi er þannig að lið verða deildarmeistarar og eftir að deildarkeppninni lýkur leika fimm efstu liðin í úrslitakeppni um hollenska meistaratitilinn. Keppni hefst aftur í hollensku deildinni 1. febrúar, en Anna Björk hóf æfingar með PSV í gær og heldur til Marbella á Spáni í dag. Þar verður liðið við æfingar næstu daga og undirbýr sig fyrir lokasprettinn. „Ég hóf viðræður við PSV Eindhoven um miðjan október og var búin að ákveða að semja við liðið um miðjan desember. Það var svo gengið endanlega frá þessu í gær. Um leið og ég skoðaði aðstæður hérna í Eindhoven þá leist mér gríðarlega vel á að ganga til liðs við félagið og það skemmdi ekki fyrir að forráðamenn liðsins sýndu mér mikinn áhuga,“ segir Anna í samtali við Fréttablaðið um vistaskiptin. „Það er himinn og haf á milli þeirra aðstæðna sem að ég er vön að æfa við í Svíþjóð og PSV Eindhoven býður upp á fyrir kvennaliðið sitt. Við æfum á frábærum æfingavelli sem er við hliðina á þeim sem karlarnir æfa á. Við fáum sams konar aðbúnað að öllu leyti og karlarnir sem er auðvitað bara eðlilegt, en því hefur ekki alltaf verið til að dreifa hjá þeim félögum sem ég hef verið að spila fyrir. Það eru allir leikmenn liðsins fyrir utan einn atvinnumenn og gera ekkert annað en að einbeita sér að knattspyrnu. Hér er allt til alls til þess að æfa á morgnana og í hádeginu, þannig að ég sé fyrir mér að bæta mig umtalsvert,“ segir hún um nýja liðið sitt. „Það er mikill metnaður hjá liðinu að gera vel heima fyrir og síðan í Meistaradeild Evrópu á næstu árum og það er mikill uppgangur í hollenskri kvennaknattspyrnu. Það heillaði mig líka að spila í vetrardeild sem leikin er á lengra tímabili en gerist og gengur í Skandinavíu. Ég er að koma til liðsins þegar tæpur mánuður er í fyrsta leik hjá liðinu sem er góður tímapunktur. Hér er ætlast til þess að ég festi mig í sessi í vörn liðsins, en ég þarf að berjast fyrir sæti mínu þar sem vel hefur gengið á fyrri hluta tímabilsins. Ég samdi út þessa leiktíð, en þeir hafa hug á að semja við mig út næstu leiktíð einnig og ég þarf að svara áður en þessu tímabili lýkur hvort ég vilji vera hér áfram. Það kemur klárlega vel til greina miðað við fyrstu kynni mín af félaginu,“ segir hún um framhaldið.
Birtist í Fréttablaðinu Fótbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira