Eiginmaðurinn dæmdur í átján ára fangelsi fyrir morðið á Janne Jemtland Atli Ísleifsson skrifar 10. desember 2018 10:10 Svein Jemtland skaut eiginkonu sína í höfuðið að kvöldi 29. desember síðastliðinn.
Dómstóll í Noregi dæmdi í morgun Svein Jemtland í átján ára fangelsi fyrir morðið á eiginkonu sinni, Janne Jemtland. Svein Jemtland var dæmdur fyrir að hafa skotið eiginkonu sína í höfuðið að kvöldi 29. desember á síðasta ári og síðar varpað henni út í ána Glomma. Verjandi Svein Jemtland sagði í morgun að dómnum yrði áfrýjað til æðra dómstigs. Málið vakti gríðarlega athygli í Noregi á sínum tíma en hjónin Svein og Janne Jemtland höfðu verið í veislu í félagsheimili í Velrom, í um átta kílómetra fjarlægð frá heimili sínu umrætt kvöld. Þau tóku leigubíl saman heim um klukkan tvö eftir miðnætti og tilkynnti Svein um hvarf eiginkonu sinnar. Dagana eftir hvarfið fór fram umfangsmikil leit að Janne og fann lögregla blóð úr henni í Brumunddal nokkrum dögum eftir hvarfið eftir ábendingu frá vegfaranda. Lík Janne fannst svo í ánni Glomma við Eidfoss-brúna þann 13. janúar, um áttatíu kílómetrum frá heimili þeirra. Á eiginmaðurinn að hafa fest rafhlöðu við líkið í þeim tilgangi að láta það sökkva til botns. Svein viðurkenndi að hafa átt þátt í dauða Janne en að um óhapp hafi verið að ræða. Svein Jemtland var starfandi í frönsku útlendingahersveitinni í um tvo áratugi, meðal annars á Balkanskaga á tíunda áratugnum. Árið 1991 var hann dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir líkamsárás. Hann og Janne gengu í hjónaband árið 2006.
Norðurlönd Tengdar fréttir Annar sonurinn var heima þegar Janne Jemtland var skotin Norðmaðurinn Svein Jemtland neitaði sök þegar aðalmeðferð hófst í máli hans í Héraðsdómi Heiðmerkur í Hamar í morgun. 12. nóvember 2018 10:52 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Annar sonurinn var heima þegar Janne Jemtland var skotin Norðmaðurinn Svein Jemtland neitaði sök þegar aðalmeðferð hófst í máli hans í Héraðsdómi Heiðmerkur í Hamar í morgun. 12. nóvember 2018 10:52