Naumur sigur kom Svíum á blað Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. desember 2018 19:38 Svíar fögnuðu sigri mynd/ehf
Svíar eru komnir á blað á EM í handbolta eftir eins marks sigur á Serbum. Rússar eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Svíar töpuðu á dramatískan hátt fyrir Dönum í fyrstu umferðinni í A-riðli á meðan Serbar unnu Pólverja. Serbneska liðið byrjaði leikinn betur og var með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Munurinn varð mest fjögur mörk en Svíar náðu að laga stöðuna og munaði tveimur mörkum, 11-13, í hálfleik. Svíar byrjuðu seinni hálfleikinn á 3-0 kafla og tóku forystuna. Eftir það var leikurinn í járnum út allan seinni hálfleikinn. Jelena Lavko jafnaði í 21-21 þegar 30 sekúndur lifðu af leiknum og Svíar fengu tækifæri á að taka sigurinn. Jenny Alm nýtti tækifærið og skoraði sigurmarkið á loka sekúndunum. Í B-riðli eru Rússar eina liðið með fullt hús á toppnum eftir eins marks sigur á Svartfellingum. Svartfellingar byrjuðu leikinn mun betur en Rússar náðu að vinna sig inn í hann aftur. Þegar flautað var í hálfleik var staðan 13-15. Svartfellingar héldu yfirhöndinni allt fram á loka mínúturnar þegar Marina Sudakova kom Rússum yfir á 58. mínútu. Durdina Jaukovic jafnaði metin að nýju en Sudakova vildi fá bæði stigin og skoraði sigurmarkið, lokastaðan 24-23.
EM 2018 í handbolta Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira