Hinn vélræni api þykir einkar raunverulegur í útliti og er honum ætlað að vekja athygli á þeirri hættu sem tegundin stendur frammi fyrir vegna framleiðslu pálmaolíu.
Órangútaninn var framleiddur af tæknibrelluteymi sem hefur unnið við sjónvarpsþætti á borð við Doctor Who og Sherlock. Hann mun fyrst sjást í jólatré á Coin Street í suðurhluta London þangað til hann verður færður á aðra staði. Hann mun einnig birtast í verslunum Iceland um allt Bretland í leit að nýju heimili ef svo má að orði komast.
Jólaauglýsing Iceland var bönnuð í síðustu viku. Um er að ræða teiknaða stuttmynd sem framleidd var af Greenpeace sem samþykkti að keðjan mætti nota myndina í auglýsingaskyni. Var það niðurstaða eftirlitsstofnunar í Bretlandi að auglýsingin stríði gegn lögum um pólitískar auglýsingar.
Bannið vakti mikil og hörð viðbrögð og voru ýmsar stórstjörnur sem dreifðu auglýsingunni í þeirri veiku von að sýningar á henni yrðu leyfðar. Breskir þingmenn hafa einnig vakið athygli á myndinni og þá hefur undirskriftasöfnun á Change.org safnað rúmlega 700 þúsund undirskriftum.
This commercial was banned from TV for being too political. I think everyone should see it x pic.twitter.com/ns2XnGSnv6Andstæðingar auglýsingarinnar hafa einnig látið í sér heyra og hefur keðjan verið sökuð um að framleiða viljandi umdeilda auglýsingu sem myndi líklega vera bönnuð í þeim tilgangi að fá meiri athygli. Iceland hefur neitað þessu og segist hafa keypt auglýsingapláss fyrir hálfa milljón punda.
— James Corden (@JKCorden) November 11, 2018
Iceland tilkynnti fyrr á árinu að keðjan hygðist hætta allri notkun á pálmaolíu við framleiðslu matvæla sem merkt eru fyrirtækinu. Pálmaolía leynist í hinum ýmsu hreinlætis- og matvörum en framleiðsla á pálmaolíu veldur svo mikilli röskun á kjörlendi órangútana að dýrategundin er nú í mikilli útrýmingarhættu.