Hné niður í þingsal er hún frétti af morðinu á dóttur sinni Kristín Ólafsdóttir skrifar 9. nóvember 2018 20:22 Hlé var gert á þingstörfum og kallað eftir lækni þegar Medel hneig niður. Mynd/Skjáskot
Mexíkóska þingkonan Carmen Medel var við störf í þingsal nýverið er henni voru fluttar fréttir af því að dóttir hennar hefði verið myrt. Hlé var gert á þingstörfum og kallað eftir lækni þegar Medel hné niður í fang samstarfskonu sinnar eftir að hún fékk fréttirnar. Í umfjöllun BBC segir að dóttir Medel, Valeria, hafi verið skotin til bana í líkamsræktarstöð í borginni Ciudad Mendoza. Valeria var 22 ára námsmaður. Upptökuvélar í þingsal náðu hinu átakanlega atviki á myndband en í myndbandinu sést Medel hrópa upp yfir sig harmi slegin. Í frétt Daily Mail segir að þingfundi hafi í kjölfarið verið frestað. Myndband BBC um málið má sjá í spilaranum hér að neðan.Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við morðið á Valeriu. Talið er að meintur byssumaður, sem síðar fannst látinn, hafi farið mannavillt og ætlað að beina vopni sínu að konu sem svipar til Valeriu. Sú er kærasta manns sem sagður er meðlimur í glæpagengi á svæðinu. Morðtíðni er afar há í Mexíkó. Það sem af er ári hafa yfir 21 þúsund morð verið framin, sem er nær 20% aukning milli ára.
Mexíkó Suður-Ameríka Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira