Leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun fara með eitt af hlutverkunum í nýrri þáttaröð sem Apple mun framleiða og heitir See. Frá þessu er greint á vefnum Deadline.
Í frétt Deadline kemur fram að Steven Knight, höfundur þáttanna Peaky Blinders, skrifi See og að Francis Lawrence, sem meðal annars leikstýrði fyrstu tveimur myndunum um Hungurleikana, leikstýri þáttunum.
Þættirnir gerast í framtíðinni og mun Hera fara með hlutverk konu sem heitir Maghra og er í frétt Deadline lýst sem ákveðinni móður. Með önnur hlutverk fara þau Jason Momoa, Christian Camargo, Sylvia Hoeks, Alfre Woodard, Yadira Guevara-Prip, Nesta Coope og Archie Madekwe.
Hera mun næst sjást á hvíta tjaldinu í aðalhlutverki í myndinni Mortal Engines sem framleidd er af Peter Jackson.
Hera Hilmars landar hlutverki í nýrri þáttaröð frá Apple

Tengdar fréttir

Sjáðu Heru Hilmars í nýrri stiklu þáttanna The Romanoffs
Leikkonan Hera Hilmarsdóttir er á meðal þeirra sem birtist í nýrri stiklu þátta Amazon, The Romanoffs, sem frumsýndir varða þann 12. október.

Hera allt í öllu í nýrri stiklu úr stórmynd Peter Jackson
Hera Hilmarsdóttir er í aðalhlutverki í nýjustu stórmynd Peter Jackson sem væntanleg er síðar á árinu. Í nótt kom út ný stikla úr myndinni þar sem Hera fer greinilega á kostum.