Þúsundir minntu á sjálfstæðiskröfu Katalóna ári eftir þjóðaratkvæðisgreiðslu Kjartan Kjartansson skrifar 1. október 2018 23:24 La senyera, fáni sjálfstæðrar Katalóníu, var áberandi á samkomu sjálfstæðissinna í dag. Vísir/EPA
Lögreglan í Barcelona áætlar að hátt í tvö hundruð þúsund manns hafi komið saman í borginni í gær til þess að minna á kröfu sína um sjálfstæði Katalóníu frá Spáni. Ár er nú liðið frá umdeildri þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin var í Katalóníu. Mótmælendur lokuðu umferðaræðum suður af Barcelona og hraðlestarlínu í katalónsku borginni Girona. Þá eru einhverjir þeirra sagðir hafa rifið niður spænska fánann við skrifstofur héraðsstjórnarinnar í Girona og dregið fána sjálfstæðrar Katalóníu að húni í staðinn, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Aðgerðirnar í gær voru á vegum samtaka sem kalla sig Varnarnefnd lýðveldisins sem krefjast sjálfstæðis frá Spáni í tilefni af því að ár er liðið frá því að Katalónar héldu þjóðaratkvæðisgreiðslu um sjálfstæði í trássi við vilja spænsku ríkisstjórnarinnar og úrskurð stjórnlagadómstóls landsins. Katalónska héraðsstjórnin lýsti yfir sjálfstæði héraðsins í kjölfarið. Það leiddi til þess að spænska ríkisstjórnin leysti upp héraðsþingið og svipti Katalóníu sjálfstjórn tímabundið. Ríkisstjórnin skilaði héraðsstjórninni völdum í júní. Þar ráða þjóðernissinnar enn ríkjum. Quim Torra, forseti héraðsstjórnarinnar, lofaði mótmælendurna fyrir að halda uppi þrýstingi um sjálfstæði. Síðustu skoðanakannanir benda til þess að naumur meirihluti Katalóna styðji sjálfstæði héraðsins, 46,7% gegn 44,9%.
Sjálfstæðisbarátta Katalóníu Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira